Fréttasafn



20. maí 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Ráðstefna fyrir félagsmenn SI um umbyltingu í iðnaði

Félagsmenn SI fá afslátt af miðaverði á ráðstefnu sem Manino heldur í samstarfi við Samtök iðnaðarins um leiðir fyrir íslensk framleiðslufyrirtæki til að bæta samkeppnishæfni á tímum tækniframfara og krefjandi starfsumhverfis. Ráðstefnan fer fram á morgun þriðudaginn 21. maí kl. 12.30-17.00 í Hörpu. Miðaverð er 25.000 kr. og 21.500 kr. fyrir aðildarfyrirtæki Samtaka iðnaðarins. Á vef Tix er hægt að kaupa miða. Yfirskrift ráðstefnunnar er Umbylting í iðnaði - hvernig skapa fyrirtæki samkeppnisforskot á tímum óvissu og breytinga?

Sérstakir gestir ráðstefnunnar eru:

· Jim Womack, upphafsmaður straumlínustjórnunar (e. lean). Höfundur metsölubókanna The Machine That Changed the World og Lean Thinking sem ollu byltingu í stjórnun fyrirtækja um allan heim.

· Karl Wadensten, eigandi bandaríska framleiðslu- og fjölskyldufyrirtækisins Vibco. Eftir að hafa staðið frammi fyrir alvarlegum vanda í rekstri réðst hann í breytingar á rekstri og sagði sóun innan fyrirtæksins stríð á hendur.

· Bret Watson, er einn af forstjórum alþjóðlega norska fyrirtækisins Jötul. Fyrirtækið hefur á síðustu árum náð eftirtektaverðum árangri með því að innleiða stöðugt umbótaferli í sína framleiðslu. Toyota notar m.a. Jötul sem dæmi um vel heppnaða innleiðingu lean aðferðanna.

Dagskrá
12:30-12:45 Opnunarræða Samtaka iðnaðarins, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
12:45-13:15 Hvað er lean og hvernig hjálpar það iðnaðinum? Jim Womack
13:15-13:45 Samkeppnisforskot með lean – Bret Watson
13:45-14:15 Förum í stríð við sóun! – Karl Wadensten
14:15-14:30 Umbylting hjá Hringrás – Daði Jóhannesson
14:30-15:00 Kaffipása
15:00-15:30 Lean er vaxtarstefna – Bret Watson
15:30-16:00 Við vinnum þetta með teymum – Karl Wadensten
16:00-16:30 Lean á tímum óvissu og tæknibreytinga – Jim Womack
16:30-16:45 Ákall um aðgerðir! Pétur Arason, Manino, lokar ráðstefnunni

Maríanna Magnúsdóttir, Chief Happiness Officer hjá Manino, er fundarstjóri ráðstefnunnar.

Umbylting_Tix_800x600px_1558347599708