Ráðstefna Sart um konur í rafiðnaði
Konur í rafiðnaði er yfirskrift ráðstefnu sem Samtök rafverktaka, Sart, efna til föstudaginn 6. mars kl. 13.30-16.00 í Háteig á Grand Hótel Reykjavík, í samstarfi við Samtök iðnaðarins, Nemastofu og Rafmennt.
Á ráðstefnunni verður sjónum beint að stöðu kvenna í rafiðnaði í dag, þeim tækifærum sem felast í aukinni þátttöku kvenna og hvernig fjölbreytni styrkir fagið, fyrirtækin og samfélagið í heild. Ráðstefnan er vettvangur fyrir samtal, tengslamyndun og lausnamiðaða umræðu fyrir öll sem vilja taka þátt í að móta rafiðnað framtíðarinnar. Að ráðstefnu lokinni verður boðið upp á léttar veitingar.
Hér er hægt að skrá sig á ráðstefnuna.
Þátttakendur í dagskrá- Ásthildur G. Guðlaugsdóttir, náms- og starfsráðgjafi í Kársnesskóla
- Bergrós Bjarnadóttir, löggiltur rafverktaki hjá Neisti rafverktakar
- Guðrún Inga Guðlaugsdóttir, framkvæmdastjóri mannauðs og menningar hjá Securitas
- Guðrún Ýrr Tómasdóttir, skólastjóri Raftækniskólans
- Helgi Rafnsson, framkvæmdastjóri Rafholts
- Jarþrúður Þórarinsdóttir, rafmagnstæknifræðingur hjá Eflu
- Jóhanna Bárðardóttir, kennari hjá Fjölbrautarskolanum í Breiðholti
- Margrét Erlingsdóttir, rafvirki hjá Rafal
- Snæfríður Þórisdóttir, rafvirkjanemi hjá Rafmiðlun
- Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir, stjórnarformaður Rafal, fundarstjórn


