Fréttasafn



18. okt. 2018 Almennar fréttir Mannvirki

Ráðstefna um byggingarúrgang

Haustráðstefna um byggingarúrgang er samvinnuverkefni milli FENÚR, Grænni byggðar og Samtaka iðnaðarins. Ráðstefnan verður haldin í Nauthól fimmtudaginn 8. nóvember næstkomandi kl. 13.00-16.30. 

Á ráðstefnunni verður meðal annars horft til þess hvað verður um mikið magn af byggingarúrgangi sem myndast nú þegar umfang byggingariðnaðar hefur vaxið mikið undanfarin ár. Verkefnin eru fjölmörg, m.a. við nýbyggingar, endurbætur og niðurrif. Fundarstjóri er Bryndís Skúladóttir, ráðgjafi hjá VSÓ ráðgjöf.

Dagskrá

Opnun ráðstefnu 
Best Practice – Reynsla Norðmanna, Eirik Wærner, ráðgjafi hjá Multiconsult í Osló
Niðurrif og nýbyggingar – staðan og áskoranir hjá Reykjavíkurborg, Rúnar Gunnarsson, deildarstjóri frumhönnunar hjá Reykjavíkurborg
Getur BIM minnkað byggingarúrgang? – Ingibjörg Birna Kjartansdóttir, BIM þróunarstjóri hjá ÍSTAK
• Kaffihlé
BREEAM verkefni hjá Framkvæmdasýslu ríkisins – Olga Árnadóttir, verkefnastjóri umhverfismála hjá Framkvæmdasýslu ríkisins
Reynsla verktaka – Eyjólfur Bjarnason, gæðastjóri hjá Framkvæmdafélaginu Arnarhvoli og Örn Tryggvi Johnsen, verkefna- og rekstrarstjóri hjá ÞG Verk 
Endurvinnslufarvegur byggingarúrgangs – Arngrímur Sverrisson, rekstrarstjóri hjá Gámaþjónustunni hf. 
Dæmi um endurvinnslu/endurnýtingu – Harpa Þrastardóttir, umhverfis- og gæðastjóri hjá Hlaðbæ Colas
Reynsla úr norskum verkefnum – Haukur Þór Haraldsson, ráðgjafi hjá Verkís 
Efnismiðlun Sorpu – Guðmundur Tryggvi Ólafsson, rekstarstjóri endurvinnslustöðva hjá Sorpu
Leiðbeiningar um byggingarúrgang – Jón Guðmundsson, fagstjóri byggingarsviðs hjá Mannvirkjastofnun
Samantekt 
Fundarlok

Hér er hægt að skrá sig á ráðstefnuna. Almennt verð 7.000 kr. og 5.000 kr. fyrir aðila að SI, Grænni byggð eða Fenúr. 

Radstefna-08-11-2018