Fréttasafn



20. mar. 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Ráðstefna um sérstöðu íslenskrar matvælaframleiðslu

Samstarfsvettvangur um Matvælalandið Ísland efnir til ráðstefnu um sérstöðu íslenskrar matvælaframleiðslu miðvikudaginn 10. apríl kl. 10-12 á Hilton Hótel Nordica. Yfirskrift ráðstefnunnar er Hvað má bjóða þér að borða? Sérstaða og samkeppnisforskot í matvælaframleiðslu. Á ráðstefnunni verður fjallað um gildi sérstöðunnar og þær áskoranir sem margar þjóðir standa frammi fyrir í sinni matvælaframleiðslu. Kröfur um örugg matvæli, fá sótspor, virðingu fyrir umhverfinu og auðlindum, bætta lýðheilsu og heilbrigt búfé munu hafa mikil áhrif á matvælaframleiðslu um heim allan á komandi árum.

Henk Jan Ormel, ráðgjafi í dýrasjúkdómum hjá Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO), fjallar um tengsl milli matvælaöryggis og sjúkdóma í mönnum og dýrum og hvernig haga má baráttu gegn matarbornum sjúkdómum. Þá verður fjallað um sérstöðu íslenskrar matvælaframleiðslu og hvernig á að sýna fram á hana og gefin dæmi um hvernig sérstaða er nýtt í markaðssetningu. Í lokin verða pallborðsumræður.

Að Matvælalandinu standa Samtök iðnaðarins, Bændasamtök Íslands, Matís, Íslandsstofa, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Matarauður Íslands og Háskóli Íslands.

Fundarstjóri er Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur Bændasamtaka Íslands.

Dagskrá

Global Changes in Food Landscape Henk Jan Ormel, sérfræðingur hjá Matvæla- og landbúnaðastofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO)

Heilnæmi íslenskra matvæla Hrönn Jörundsdóttir, sviðsstjóri hjá Matís, Brigitte Brugger og Vigdís Tryggvadóttir, sérgreinadýralæknar hjá Matvælastofnun

Styrkur Íslands – matvælastefna í mótun Vala Pálsdóttir, formaður starfshóps um matvælastefnu fyrir Ísland

Matarferðaþjónusta á Norðurlandi Arnheiður Jóhannsdóttir, framkvæmdastjóri markaðsstofu Norðurlands

Áfangastaðurinn Austurland – Matarupplifun María Hjálmarsdóttir, verkefnastjóri, Austurbrú

Pallborðsumræður, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og heilbrigðisráðherra, auk frummælenda.

Fundi lýkur með hádegishressingu – íslenskt og gott.

Enginn aðgangseyrir. 

Hér er hægt að skrá sig á ráðstefnuna.

Auglysing-2019_1553247846623