Raforkuskortur leitt til verðhækkana
Viðbrögð Samtaka iðnaðarins við greiningu Raforkueftirlits Umhverfis- og orkustofnunar um þróun raforkukostnaðar á Íslandi og áhrif á notendur:
-
Raforkukostnaður hefur hækkað langt umfram verðbólgu undanfarin ár sem staðfestir það sem Samtök iðnaðarins hafa haldið fram um þróun raforkuverðs.
-
Eftirspurn umfram framboð hefur valdið verðhækkunum og brýnt er að ráðast í tafarlausa uppbyggingu nýrrar orkuvinnslu og raforkukerfisins.
-
Í greiningu Raforkueftirlitsins felast mikil tíðindi og eiga umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og ný Umhverfis- og orkustofnun hrós skilið fyrir að láta taka saman þessar upplýsingar, sem eru nýmæli fyrir íslenskan raforkumarkað.
Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins: „Raforkukostnaður hefur hækkað langt umfram verðbólgu undanfarin ár, sem staðfestir það sem við hjá Samtökum iðnaðarins höfum verið að benda á. Raforkuskortur er meginorsök þessarar þróunar en sá skortur er afleiðing áralangrar kyrrstöðu við uppbyggingu raforkukerfisins sem hefur kostað samfélagið mikið og verið dragbítur á samkeppnishæfni íslensk iðnaðar. Það er því brýnt að ráðast í tafarlausa uppbyggingu nýrrar orkuvinnslu og raforkukerfisins til að mæta vaxandi eftirspurn og tryggja stöðugleika í verði.“
Samtök iðnaðarins hafa ítrekað lýst yfir áhyggjum af stöðu raforkumála á Íslandi og töfum á uppbyggingu í raforkukerfinu sem hefur haft áhrif á raforkuverð til heimila og atvinnulífs. Samtökin hafa haft áhyggjur af áhrifum þessa á samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs og lífskjör landsmanna. Samtökin hafa einnig bent á að raforkuverð hafi hækkað umtalsvert umfram verðbólgu á undanförnum árum og telja að skortur á raforku sé meginorsök þessarar þróunar en sá skortur er afleiðing áralangrar kyrrstöðu við uppbyggingu raforkukerfisins.
Ítarleg greining Raforkueftirlits Umhverfis- og orkustofnunar sem var gefin út í dag staðfestir í meginefnum það sem Samtök iðnaðarins hafa haldið fram um árabil. Skýrslan staðfestir að raforkukostnaður íslenskra heimila, stærri fyrirtækja, stórnotenda og garðyrkjubænda hefur hækkað langt umfram verðbólgu síðastliðin fimm ár (frá 2020 til 2025). Hækkun á öllum liðum, þ.e. verði raforku, dreifikostnaði og flutningskostnaði, vekur athygli.
Þá vekur athygli að öfugt við það sem hefur verið ýjað að í opinberri umræðu þá komu engar skýrar vísbendingar fram um að tilfærsla frá heildsöluorkumarkaði til stórnotenda hefði átt sér stað eða að viðskiptavinir hefðu í stórum stíl verið fluttir milli markaðshluta. Greiningin sýndi að stórnotendur alls væru að nýta samanlagðar heimildir sínar til samninga um orkukaup innan ramma gildandi laga og reglna.