Fréttasafn



6. okt. 2022 Almennar fréttir Mannvirki Samtök rafverktaka

Rafverktakar fjölmenntu á fagsýningu í Frankfurt

Samtök rafverktaka, SART, stóðu fyrir ferð á fagsýninguna Light+building sem var haldin í Frankfurt í Þýskalandi 2.-6. október eftir að sýningunni hafði verið frestað ítrekað vegna heimsfaraldurs. 

Íslenskir rafverktakar fjölmenntu á sýninguna, en frá SART fóru 24 aðilar til Frankfurt og kynntu sér það helsta sem íslenskir birgjar ásamt þeirra framleiðendum vildu vekja athygli á. Einnig var boðið upp á dagskrá á kvöldin.

20221004_142916

20221004_111618

20221004_111613