Fréttasafn



2. júl. 2026 Almennar fréttir Samtök rafverktaka

Rafvirkjameistarar hittast í Múlakaffi

Kaffiklíkan er hress hópur rafvirkjameistara sem hittist í Múlakaffi flesta miðvikudagsmorgna. Framkvæmdastjóri Samtaka rafverktaka, Sart, hitti Kaffiklíkuna fyrir skömmu og höfðu menn frá mörgu að segja. Farið var um víðan völl og meðal annars rætt um öryggismál rafiðnaðarmanna, jafnréttis-, mennta- og réttindamál voru einnig krufin til mergjar á milli þess sem sagðar voru sögur og brandarar úr bransanum. 

Á myndinni sem tekin var af hópnum má sjá í efri röð frá vinstri Kristján D. Sigurbergsson, framkvæmdastjóra Sart, Pál Kristinsson hjá Rafspor, Eyjólf Björgmundsson hjá Rafrós, Guðjón Guðmundsson og í neðri röð eru Ísak Lárusson hjá Ljósver, Guðmundur Jóhannsson, Jón Jónsson hjá Dyrasímar raflagnir, Helgi Kolsøe hjá Ljósafoss, Baldur Hannesson og Guðbrandur Benediktsson.