Fréttasafn



21. maí 2019 Almennar fréttir

Ragnheiði þökkuð störf í þágu íslensks iðnaðar

Ragnheiður Héðinsdóttir, viðskiptastjóri matvælaiðnaðar á framleiðslusviði SI, lætur af störfum í dag eftir 26 ár hjá Samtökum iðnaðarins og Félagi íslenskra iðnrekenda og lýkur þar með sínum starfsferli. Ragnheiður hóf störf í maí 1993 og hefur í gegnum árin verið í tengslum við fjöldann allan af félagsmönnum samtakanna.

Samtök iðnaðarins þakka Ragnheiði fyrir allt hennar framlag í þágu félagsmanna og óska henni velfarnaðar í því sem hún tekur sér fyrir hendur eftir farsælt starf hjá samtökunum. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, færði Ragnheiði blóm og kveðjugjöf frá samtökunum.