Fréttasafn



17. okt. 2019 Almennar fréttir

SA fagna 20 ára afmæli

Samtök iðnaðarins sem eru meðal aðildarsamtaka Samtaka atvinnulífsins óska SA til hamingju með áfangann en í dag fagna síðarnefndu samtökin 20 ára afmæli á ársfundi atvinnulífsins 2019 sem verður haldinn í dag kl. 14-16 í Eldborg í Hörpu. 

Á fundinum flytja ávörp Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra. Einnig flytja erindi Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs Samtaka atvinnulífsins, og Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Í tilefni af afmælinu verður gefin út bók þar sem Guðmundur Magnússon rekur sögu vinnumarkaðar og efnahagslífs síðustu tveggja áratuga. 

Nánar á vef SA.