Samdráttur í íbúðaverkefnum hjá arkitekta- og verkfræðistofum
Í nýrri greiningu SI kemur fram að stjórnendur arkitekta- og verkfræðistofa vænti samdráttar í verkefnum á íbúðamarkaði á næstunni. Samkvæmt niðurstöðum könnunar sem Outcome gerði fyrir Samtök iðnaðarins í upphafi þessa árs í samstarfi við Samtök arkitektastofa og Félag ráðgjafarverkfræðinga þá telja 43% stjórnenda arkitekta- og verkfræðistofa að verkefnum þeirra á íbúðamarkaði muni fækka á næstu tólf mánuðum en ekki nema 1% að þeim muni fjölga. Arkitekta- og verkfræðistofur eru framarlega í byggingarferlinu og gefa niðurstöðurnar vísbendingu um að hægja muni að óbreyttu á uppbyggingu íbúða litið til næstu 1-2 ára.
Í niðurstöðum könnunarinnar kemur fram að verkefnum arkitekta- og verkfræðistofa á íbúðamarkaði hafi fækkað á síðustu tólf mánuðum og að þeim muni halda áfram að fækka á næstu tólf mánuðum. Segja um 42% svarenda að verkefnum fyrir íbúðamarkað hafi fækkað á síðustu tólf mánuðum en ekki nema 3% að þeim hafi fjölgað. Náði könnunin til aðila í greininni sem standa undir um 60% af heildarveltu allra arkitekta- og verkfræðistofa.


Fjöldi íbúða í byggingu helst nær óbreyttur
Fjöldi íbúða í byggingu verður nær óbreyttur eftir tólf mánuði samkvæmt könnun sem Outcome framkvæmdi fyrir Samtök iðnaðarins og lögð var fyrir stjórnendur verktakafyrirtækja sem byggja íbúðir í eigin reikning í upphafi þessa árs. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar gera stjórnendur fyrirtækjanna ráð fyrir að hafist verði handa við byggingu 1.333 íbúða á næstu tólf mánuðum og á sama tíma verði lokið við byggingu á 1.185 íbúðum.
90% stjórnendanna segja að háir vextir hafi dregið úr áformum þeirra um íbúðauppbyggingu, 83% segja að hækkanir sveitarfélaga á sköttum og gjöldum sem þau leggja á byggingu íbúða hafi heft uppbyggingu hjá þeirra fyrirtækjum og sami fjöldi stjórnenda telur að lækkun endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði úr 60% í 35% hafi dregið úr íbúðauppbyggingu.

Hér er hægt að nálgast greininguna í heild sinni.
RÚV fréttir kl. 8, 19. febrúar 2026.
mbl.is , 19. febrúar 2026.
Vísir, 19. febrúar 2026.
Viðskiptablaðið, 19. febrúar 2026.
RÚV, 19. febrúar 2026.
Morgunblaðið, 19. febrúar 2026.


