Fréttasafn



5. mar. 2019 Almennar fréttir

Samstarf í málefnum EES

Utanríkisráðuneytið efnir til morgunfundar um samstarf í málefnum Evrópska efnahagssvæðisins ásamt Alþýðusambandi Íslands og Samtökum atvinnulífsins miðvikudaginn 13. mars næstkomandi á Grand hótel Reykjavík kl. 8.30-10.00. Björg Ásta Þórðardóttir, lögfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins, tekur þátt í pallborðsumræðum. 

Hér er hægt að skrá sig á fundinn.

Á fundinum verður kynntur nýr opinn EES gagnagrunnur þar sem EES-gerðir eru aðgengilegar á einum stað og upplýsingaveita um Evrópska efnahagssvæðið sett í loftið. Rætt verður hvernig atvinnulífið og launþegasamtök geta haft áhrif á mótun löggjafar á EES svæðinu og hvernig auka megi samstarf hér á landi um málefni sameiginlega markaðarins. Fundarstjóri er María Mjöll Jónsdóttir, deildarstjóri upplýsinga- og greiningardeildar utanríkisráðuneytisins.

Dagskrá

  • Opnunarávarp: Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra.
  • Mikilvægi EES fyrir atvinnulífið: Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA, og Davíð Þorláksson, forstöðumaður samkeppnishæfnisviðs SA.
  • Vannýtt tækifæri og hagsmunir launafólks: Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ.
  • Kynning á opna EES gagnagrunninum og upplýsingaveitu um EES samstarfið: Kristín Halla Kristinsdóttir, sérfræðingur á viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytis.

Pallborðsumræður:

  • Anna Guðrún Björnsdóttir, sviðsstjóri þróunar- og alþjóðasviðs Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Björg Ásta Þórðardóttir, lögfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins
  • Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands
  • Nikulás Hannigan, skrifstofustjóri viðskiptaskrifstofu utanríkisráðuneytisins