Fréttasafn



3. mar. 2025 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Samtök leikjaframleiðenda

Samtök leikjaframleiðenda á Bessastöðum

Forseti Íslands tók á móti forsvarsmönnum Samtaka leikjaframleiðenda, IGI. Á vef forseta kemur fram að innan þeirra vébanda starfi yfir 20 fyrirtæki með um 500 starfsmenn og að á fundinum hafi verið rætt um hraðan vöxt í íslenskum leikjaiðnaði á síðustu árum og tækfæri til frekari vaxtar í framtíðinni.

Þá segir að samtökin vinni að sameiginlegum hagsmunamálum íslenskra leikjafyrirtækja þar á meðal kynningu íslenskrar framleiðslu og hönnunar á erlendri grundu. Fram hafi komið á fundinum að yfir 86% Íslendinga á aldrinum 18-30 ára segjast spila tölvuleiki og 78% í aldurshópnum 31-45 ára.

Á myndinni eru Halldór Snær Kristjánsson, stofnandi Myrkur Games og stjórnarformaður IGI, Stefán Björnsson, stofnandi Solid Clouds og stjórnarmaður IGI, Halla Tómarsdóttir, forseti Íslands, Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri Icelandic Game Industry hjá SI, og Eggert Árni Gíslason, stjórnarformaður Solid Clouds.