Fréttasafn



4. feb. 2022

Sex staðreyndir um íbúðamarkaðinn

Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, og Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, segja frá sex staðreyndum um íbúðamarkaðinn í grein sinni í Morgunblaðinu. Þau segja stöðuna á íbúðamarkaðinum hafa haft mikil áhrif á verðbólgu og vexti og þar með verði áhrifin mikil á alla landsmenn. Jafnframt kemur fram í greininni að Samtök iðnaðarins hafi í langan tíma varað við því að þetta gæti orðið raunin og nú þegar veruleikinn blasi við sé mikilvægt að umræðan byggist á staðreyndum. 

Þær staðreyndir sem þau fjalla um í greininni eru:

  1. Íbúðum í byggingu hefur fækkað samfellt frá mars 2019 samkvæmt nýjustu talningu SI. Í september síðastliðnum voru 3.387 íbúðir í byggingu samkvæmt talningunni. Ekki hafa færri íbúðir verið í byggingu á höfuðborgarsvæðinu á fimmta ár eða síðan í mars 2017.
  2. Allar hillur eru nánast tómar en í fyrstu vikunni í janúar voru 487 íbúðir til sölu á höfuðborgarsvæðinu en bæði fjöldi einbýla og íbúða í fjölbýli er í sögulegu lágmarki samkvæmt upplýsingum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). Fyrir tæpum tveimur árum var fjöldinn um 2.200. Ekki hafa færri íbúðir verið í sölu frá því að mælingar hófust. 
  3. Að mati HMS þarf að byggja 3.500 íbúðir á ári næstu árin til að mæta væntri fólksfjölgun. Byggist matið á fólksfjöldaspá Hagstofunnar. Hafa þarf í huga að fólksfjölgun hefur verið umfram spá Hagstofunnar undanfarin ár. Ef sú þróun heldur áfram er ljóst að þörfin fyrir nýjar íbúðir verður enn meiri. Að óbreyttu er þörfin mun meiri en framboð á næstunni. 
  4. Skortur á réttu lóðaframboði og skipulagi fyrir fleiri íbúðir hefur átt stóran þátt í þeim vanda sem skapast hefur á íbúðamarkaði. Þó að staða sveitarfélaga til að brjóta nýtt land sé misgóð er ljóst að slíkt land er til. 
  5. Hagkvæmar íbúðir verða ekki byggðar á þéttingarreitum. Rík áhersla hefur verið lögð á uppbyggingu hagkvæms íbúðarhúsnæðis en rétt lóðaframboð kemur í veg fyrir að hægt sé að mæta þeirri þörf. 
  6. Skipulagsferli íbúðauppbyggingar er allt of þungt í vöfum hér á landi. Of mörg mál fara of hægt í gegnum ferlið, skortur er á skýrum tímafrestum og hvenær von er á niðurstöðum. Tafir og hindranir í ferlinu auka kostnað við byggingu íbúða svo um munar og aðkallandi þörf er á innleiðingu frekari rafrænna ferla. 

Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni.

Morgunblaðið, 4. febrúar 2022.

Morgunbladid-04-02-2022