Fréttasafn



23. maí 2025 Almennar fréttir Efnahagsmál Fréttatilkynning

SI á formannafundi BusinessEurope: Brýnt að styrkja efnahag Evrópu

Fulltrúar Samtaka iðnaðarins tóku þátt í fundi formanna BusinessEurope þar sem áhersla var lögð á samstöðu og markvissar aðgerðir til að styrkja samkeppnishæfni Evrópu. Árni Sigurjónsson, formaður SI, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, og Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, sóttu formannafund BusinessEurope (CoPres) sem haldinn var í Kaupmannahöfn í dag en Danir taka við formennsku í ráðherraráði Evrópusambandsins um mitt ár. Fundurinn sendi frá sér yfirlýsingu, Copenhagen Declaration, sem undirstrikar mikilvægi þess að efla efnahag Evrópu og bregðast við áskorunum með samstöðu og áræðni.

Í yfirlýsingunni er kallað eftir tafarlausum aðgerðum til að lækka orkukostnað í álfunni og styðja við orkuskipti án þess að skerða samkeppnishæfni iðnaðarins. Evrópsk fyrirtæki þurfi að finna fyrir raunverulegri einföldun regluverks, en núverandi hugmyndir um slíkt dugi skammt. Einfalda þurfi ferli leyfisveitinga og skapa skýra hvata til fjárfestinga í grænni iðnbyltingu. Þá er hvatt til umbóta á innri markaðnum og til þess að efla rannsóknir og þróun í álfunni.

Í yfirlýsingunni er einnig sérstaklega minnst á EES EFTA ríkin sem órjúfanlegan hluta af innri markaðinum og mikilvægi þess að tryggja hagsmuni ríkjanna í viðræðum við Bandaríkin.

Hlutverk SI í evrópskri hagsmunagæslu

Samtök iðnaðarins hafa um árabil sinnt alþjóðlegri hagsmunagæslu fyrir íslenskan iðnað. Aðild að BusinessEurope tryggir íslenskum iðnfyrirtækjum rödd á vettvangi sem mótar framtíðarrekstrarumhverfi innan evrópska efnahagssvæðisins. Þátttaka SI í formannafundinum undirstrikar mikilvægi þess að Ísland sé virkur þátttakandi í mótun þeirrar stefnu sem hefur bein áhrif á samkeppnishæfni íslensks iðnaðar og vöxt framtíðarinnar.

Samstaða og markvissar aðgerðir 

Samstaða og markvissar aðgerðir er það sem þarf til að styrkja efnahag Evrópusambandsins segir í fréttatilkynningu BusinessEurope. Auk þess er vitnað til forseta BusinessEurope og framkvæmdastjóra Dansk Arbejdsgiverforening og Dansk Industri sem eru systursamtök SA og SI:

Fredrik Persson, forseti BusinessEurope: „Sterkari efnahagur með samkeppnishæfum fyrirtækjum er forsenda þess að Evrópa geti tekist á við þær geopólitísku og samfélagslegu áskoranir sem fram undan eru. Evrópusambandið verður án tafar að innleiða nýju stefnu sína um innri markaðinn, grípa til frekari aðgerða til að lækka orkukostnað og koma á raunverulegri einföldun regluverksins til að bregðast hratt við rótum samkeppnishæfnigapsins í Evrópu. Samstaða og framsækin alþjóðaviðskiptastefna eru mikilvægari en nokkru sinni – þar þarf fyrst að tryggja skjóta staðfestingu viðskiptasamninga við Mercosur og Mexíkó. Í samskiptum við Bandaríkin þarf ESB að gæta hagsmuna sinna með það að markmiði að finna samningsbundna lausn til að forðast skaðlegt „tollastríð“. Leiðtogafundurinn milli ESB og Bretlands sem fór fram nýlega opnar tækifæri til að efla stefnumiðað samstarf og auka sameiginlega hagsæld. BusinessEurope treystir því að væntanleg dönsk formennska muni stuðla að því víðtæka samstarfi sem nauðsynlegt er til að mæta þeim sögulegu áskorunum sem Evrópusambandið stendur frammi fyrir.“

Jacob Holbraad, framkvæmdastjóri DA: „Sterkari evrópskur efnahagur byggist á aukinni samkeppnishæfni með því að byggja upp hæft vinnuafl, draga úr skrifræði og virða þjóðleg vinnumarkaðsmódel. Við fögnum því að væntanleg dönsk formennska í ESB leggur áherslu á félagslegan samráðsvettvang – ekki bara í orði heldur sem raunverulegt tæki til að skapa störf, efla stöðugleika og tryggja langtímavöxt. Nýjar reglur ESB þurfa að taka mið af þjóðlegum aðstæðum og styðja við samkeppnishæfni fyrirtækja á alþjóðamarkaði.“

Lars Sandahl Sørensen, framkvæmdastjóri DI: „Evrópa stendur frammi fyrir alvarlegri krísu – velsæld okkar og samkeppnishæfni eru ekki lengur sjálfgefin. En í mótlæti felast einnig tækifæri til að bregðast ákveðið við: með því að brjóta niður innri hindranir, einfalda reglur og fjárfesta af krafti í vörnum, nýsköpun og grænni umbreytingu. Eftir að hafa hitt alla evrópsku kollega mína hér í Kaupmannahöfn get ég sagt með fullri vissu að við – sameinað evrópskt atvinnulíf – erum staðráðin í að leggja okkar af mörkum til þessarar mikilvægu umbreytingar. Ég trúi því að við getum, saman, breytt afturför í framfarir.“

Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, Árni Sigurjónsson, formaður SI, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

COPRES-2025_DSC02069

COPRES-2025_DSC01998

COPRES-2025_DSC01833

COPRES-2025_DSC01717