Fréttasafn



5. maí 2026 Almennar fréttir Efnahagsmál Fréttatilkynning

SI andmæla harðlega lækkun á endurgreiðslu virðisaukaskatts

Samtök iðnaðarins hafa skilað umsögn um tillögu til þingsályktunar um fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031. Þar er sett fram samantekt yfir helstu áherslur SI ásamt ítarlegri umfjöllun um einstaka málaflokka. Samtök iðnaðarins andmæla harðlega boðuðum áformum stjórnvalda um lækkun eða niðurfellingu á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna á verkstað. Þá benda samtökin á mikilvægi þess að fjármálaáætlun styðji með beinum hætti við markmið nýrrar atvinnustefnu stjórnvalda og að stjórnvöld leggi sitt lóð á vogaskálarnar til að ná niður verðbólgu og vöxtum.

Helstu áherslur

  • Fyrirhugaðri skattahækkun á íbúðauppbyggingu mótmælt: SI mótmæla harðlega áformum um að fella niður eða lækka endurgreiðslu VSK vegna vinnu manna á verkstað. Lækkun úr 35% í 0% jafngildir 2,5-3 milljóna króna skattahækkun á byggingarkostnað 100 fermetra íbúðar. Um er að ræða skattahækkun sem mun draga úr uppbyggingu, auka atvinnuleysi, ýta undir svarta vinnu og draga úr getu almennings til að viðhalda fasteignum sínum.
  • Fjármálaáætlun þarf að endurspegla atvinnustefnu ríkisstjórnarinnar: SI fagna nýrri atvinnustefnu Íslands og aðgerðaráætlun sem fylgir stefnunni. Samtökin hafa lengi kallað eftir heildstæðu vaxtarplani fyrir Ísland og telja að stefnan geti orðið stökkpallur inn í næsta hagvaxtarskeið. Í nýrri atvinnustefnu felast tækifæri til að efla íslenskan iðnað, auka framleiðni og bæta lífskjör hér á landi. Mikilvægt er að fjármálaáætlunin endurspegli að fullu nýja atvinnustefnu stjórnvalda.
  • Lækka þarf verðbólgu og vexti: SI fagna yfirlýstum markmiðum fjármálaáætlunar að ná hallalausum fjárlögum á næsta ári og gera ráð fyrir afgangi á ríkisrekstri á öllum árum áætlunarinnar. SI telja að fjármálastefnan gæti gert betur með því að beina fjármagni úr almennum rekstri ríkisins yfir í verkefni sem styrkja framleiðni og framboðshlið þjóðarbúsins. Með markvissari aðgerðum í opinberum fjármálum má ná niður verðbólgu og vöxtum en á sama tíma renna stoðum undir aukna verðmætasköpun hagkerfisins.

Hér er hægt að nálgast umsögn SI í heild sinni.