Fréttasafn



6. apr. 2018 Almennar fréttir Mannvirki

SI efna til fundar um íbúðamarkað á krossgötum

Samtök iðnaðarins efna til fundar þar sem farið verður yfir stöðuna á íbúðamarkaðnum,framtíðarhorfur og nauðsynleg skref til úrbóta. Fundurinn sem ber yfirskriftina Íbúðamarkaður á krossgötum verður haldin á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 17. apríl kl. 8.30-10.00. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá kl. 8.00. Hér er hægt að skrá sig á fundinn.

Með fjölgun landsmanna og auknum umsvifum í hagkerfinu hefur myndast mikil spurn eftir húsnæði. Á fundinum verða kynntar niðurstöðurnýrrar talningar SI á íbúðum í byggingu og spá um íbúðabyggingar til ársins 2020. Farið verður yfir hvaða leiðir eru færar til að mæta aukinni eftirspurn og skoða á hvort sagan geti kennt okkur hvernig megi bregðast við. Fundarstjóri er Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI.

Dagskrá

  • Ný íbúðatalning SI Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóribyggingariðnaðar á mannvirkjasviði SI
  • Framtíð íbúðamarkaðarins Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI
  • Við höfum gert þetta áður Pétur Ármannsson, arkitekt
  • Stöðugleiki með öðru skipulagi Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Frá hugmynd að veruleika Eyrún Arnarsdóttir, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI
  • Leiðir til lausna, pallborðsumræður
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
  • Gylfi Gíslason, forstjóri JÁVERK
  • Helgi Már Halldórsson, ASK arkitektar, formaður SAMARK
  • Sigrún Ragna Ólafsdóttir, forstjóri Mannvits

Skráning á fundinn. 

Auglysing_final_1523027214415