Fréttasafn



19. jún. 2026 Almennar fréttir Efnahagsmál Fréttatilkynning

SI fagna nýrri samgönguáætlun og stofnun innviðafélags

Alþingi hefur samþykkt nýja samgönguáætlun til ársins 2040, fimm ára aðgerðaáætlun og lög um stofnun nýs innviðafélags ríkisins. Samtök iðnaðarins fagna þessum mikilvæga áfanga. Með samþykktinni er stigið stórt og löngu tímabært skref í átt að því að rjúfa kyrrstöðu í samgöngumálum og eyða óvissu um áform stjórnvalda, vinna á uppsafnaðri viðhaldsskuld og hefja að nýju stórar samgönguframkvæmdir, þar á meðal jarðgangagerð. Með þessari niðurstöðu binda samtökin vonir við að festa náist í samgöngumálum og það verði til sá fyrirsjáanleiki sem atvinnulíf, verktakar og almenningur hafa kallað eftir.

Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI: „Samþykkt samgönguáætlunar og laga um innviðafélag eru mikilvægustu tíðindi ársins hvað varðar samgönguinnviði þjóðarinnar. Innviðaskuld hefur fengið að safnast upp í vegakerfinu á meðan beðið hefur verið eftir ákvörðunum um fjárfestingar og viðhald á þessu sviði. Sú staðreynd að engar nýjar jarðgangaframkvæmdir hafi verið hafnar í fimm ár er skýrt dæmi um þá kyrrstöðu sem við verðum að rjúfa. Með auknum fyrirsjáanleika, nýjum fjármögnunarleiðum og skýrari framkvæmdaráætlunum getum við framkvæmt hraðar, hagkvæmar og með meiri ávinningi fyrir samfélagið.“

Alvarleg staða innviða kallar á tafarlausar aðgerðir

Niðurstöður skýrslunnar Innviðir á Íslandi 2025 – Ástand og framtíðarhorfur, sem SI og Félag ráðgjafarverkfræðinga (FRV) gáfu út í sameiningu á síðasta ári, sýna að staða margra lykilinnviða landsins er alvarleg. Meðaleinkunn innviða á Íslandi mælist 3 af 5, en vegakerfið fær falleinkunnina 2 og telst því í óásættanlegu ástandi.

Uppsöfnuð viðhaldsskuld í vegakerfinu einu og sér er metin á 265–290 milljarða króna, en heildarviðhaldsskuld innviðakerfisins alls nemur um 680 milljörðum króna. Vegakerfið hefur ekki vaxið í takt við fólksfjölgun, hagvöxt og aukna umferð undanfarinna ára, sem hefur leitt til þess að þjónustugeta þess er víða fullnýtt. Það hefur sýnilega neikvæð áhrif á sem koma fram í minna umferðaröryggi, auknum umferðartöfum sem dregur úr framleiðni, samkeppnishæfni og verðmætasköpun hagkerfisins.

Rjúfa þarf kyrrstöðu í jarðgangagerð

Samtök iðnaðarins leggja sérstaka áherslu á að eftirfylgni þarf að vera með áformum stjórnvalda um að boða nýtt sóknartímabil í jarðgangagerð á Íslandi. Engar nýjar framkvæmdir við jarðgöng hafa hafist hér á landi síðan Dýrafjarðargöng voru opnuð árið 2020.

Jarðgöng gegna lykilhlutverki við að bæta umferðaröryggi, tryggja öruggar samgöngur allt árið um kring og tengja saman byggðakjarna í sterkari og stærri atvinnu- og þjónustusvæði. Samtökin telja algert grundvallaratriði að ný samgönguáætlun og hið nýja innviðafélag verði nýtt til að koma þessum bráðnauðsynlegu verkefnum aftur af stað án tafar.

Fyrirsjáanleiki skilar hagkvæmari framkvæmdum

Fyrirsjáanleiki í opinberum framkvæmdum er ein af lykilforsendum þess að uppbygging innviða verði hagkvæm. Frestanir, tíðar breytingar á áætlunum og óstöðugleiki milli ára leiða óhjákvæmilega til hærri kostnaðar og minni skilvirkni.

Greining SI sýnir að 91% stjórnenda verktakafyrirtækja telja að ófyrirsjáanleiki í opinberum framkvæmdum leiði til hærri tilboða. Með aukinni festu og stöðugleika í verkefnaáætlunum væri mögulegt að lækka framkvæmdakostnað umtalsvert og spara ríkissjóði tugi milljarða króna. Þess vegna leggja samtökin áherslu á að samgönguáætlun sé ekki aðeins metnaðarfull yfirlýsing heldur raunhæfur og fjármagnaður grundvöllur að framkvæmdum á komandi árum.

Vanda þarf uppbyggingu innviðafélagsins

Samtök iðnaðarins hafa frá upphafi stutt stofnun innviðafélags sem tæki til að hraða uppbyggingu samgönguinnviða og tryggja fjölbreyttari fjármögnun stórra verkefna. Samtökin leggja ríka áherslu á að við innleiðingu og starfsemi félagsins verði sérstaklega gætt að eftirfarandi lykilatriðum:

  • Faglegur samanburður: Framkvæma þarf faglegan samanburður á mismunandi framkvæmdaleiðum fyrir stærri verkefni, þar á meðal samvinnuverkefnum við einkaaðila (PPP).

  • Ráðstöfun skatttekna: Tryggja verður að skattar og gjöld sem innheimt eru af umferð renni áfram óskert til uppbyggingar og viðhalds vegakerfisins. Stofnun innviðafélagsins leysir ríkið ekki undan þeirri ábyrgð.

  • Fagleg stjórn: Stjórn félagsins verður að vera skipuð á grundvelli sérþekkingar á fjármögnun, rekstri og innviðauppbyggingu.

  • Skýr hlutverkaskipting: Skilgreina þarf skýra og skilvirka verkaskipting á milli innviðafélagsins og Vegagerðarinnar til að forðast dýran tvíverknað og tryggja hámarkshagkvæmni.

Samtök iðnaðarins munu áfram fylgjast náið með framkvæmd samgönguáætlunarinnar og starfsemi innviðafélagsins með það að markmiði að tryggja að uppbygging samgönguinnviða verði bæði markviss og fyrirsjáanleg í þágu atvinnulífs, samkeppnishæfni og lífsgæða.