Fréttasafn



16. apr. 2026 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

SI mótmæla harðlega boðaðri lækkun stjórnvalda á endurgreiðslu

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir í frétt Morgunblaðsins að samtökin mótmæli harðlega boðaðri lækkun stjórnvalda á endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna á verkstað líkt og kemur fram í nýrri greiningu SI. Hann segir aðgerðina geta jafngilt að meðaltali 2,5-3 milljóna króna skattahækkun á byggingarkostnað 100 fermetra íbúðar og að draga muni verulega úr byggingu íbúða.

Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að Sigurður segi að málið virðist allt vera á misskilningi byggt. „Það er alrangt að þessi endurgreiðsla sé tilfallandi ívilnun eða úrræði sem hægt er að draga úr án víðtækra áhrifa.“ Hann segir að endurgreiðslan eigi rætur að rekja til þess þegar núverandi virðisaukaskattskerfi var komið á fyrir mörgum árum. „Það var sett á til að koma í veg fyrir að byggingarkostnaður hækkaði um of. Ástæðan var einföld: skatturinn var lagður á af því að virðisaukaskattur er ekki lagður á þegar húsnæði er selt. Eina leiðin fyrir byggingaraðila til að fá endurgreiddan þennan skatt að hluta er með þessu úrræði, sem nú gæti verið að hverfa fyrir fullt og allt. Ef það er ekki fyrir hendi er augljóst að verð fasteigna mun hækka.“ Verktaki sem byggir íbúðir er með launþega í vinnu. Ofan á laun þeirra þarf að reikna virðisaukaskatt og skila inn. Hægt er að fá hluta hans endurgreiddan. „Þetta þekkist ekki í neinni annarri atvinnugrein. Þetta er ekki ívilnun, gat eða glufa heldur leið til að halda skattkerfinu sanngjörnu.“ Hann segir að ef endurgreiðslan lækki þýði það í raun að skattar á húsbyggingar séu að hækka. „Það leiðir til hærri byggingarkostnaðar og dregur úr uppbyggingu.“

Morgunblaðið / mbl.is, 16. apríl 2026. 

Morgunbladid-16-04-2026_2