Fréttasafn



10. feb. 2026 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Starfsumhverfi

SI og SA vara við áhrifum frumvarps á hugverkaiðnað og samkeppnishæfni Íslands

Samtök iðnaðarins (SI) og Samtök atvinnulífsins (SA) hafa skilað umsögn um breytingar á lögum um stuðning við nýsköpunarfyrirtæki. Þótt samtökin styðji aukið gagnsæi í kerfi skattahvata vegna rannsókna og þróunar (R&Þ), telja þau að tiltekin ákvæði frumvarpsins grafi undan trausti og dragi úr fjárfestingum.

Samtökin gagnrýna ósveigjanlegt mat á fjárhagsvanda sem endurspeglar ekki eðli fyrirtækja í rannsóknum og þróun enda rekstrartap á uppbyggingarstigi eðlilegur hluti nýsköpunarferils og endurspeglar fjárfestingu í framtíðarverðmætasköpun. Þá er jafnframt gagnrýnt að enn sé miðað við mat á fjárhagsvanda á stöðu á umsóknardegi og útilokar þar með mörg öflug vaxtarfyrirtæki frá skattahvötunum. Jafnframt er varað við takmörkunum á aðkeyptri þjónustu sem hamli alþjóðlegri samvinnu og geti dregið úr vilja fyrirtækja til að fjárfesta í nýsköpun og og hugverkum á Íslandi. Að lokum er gerð athugasemd við notkun óljósra hugtaka og aukið flækjustig í reglugerðum sem draga úr fyrirsjáanleika og geta grafið undan skilvirkni kerfisins.

Samtökin hvetja Alþingi til að endurskoða þessi ákvæði til að tryggja að skattahvatar vegna rannsókna- og þróunar nýtist áfram sem öflugt tæki til verðmætasköpunar. Fyrirsjáanleiki er lykilforsenda þess að útflutningstekjur hugverkaiðnaðar haldi áfram að vaxa.

Hér er hægt að nálgast umsögnina í heild sinni.