SI styðja einföldun og samræmingu í eftirliti
Samtök iðnaðarins hafa skilað umsögn um frumvarp til laga um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum. Í umsögninni fagna samtökin þeim viðamiklu kerfisbreytingum sem boðaðar eru og telja þær mikilvægt skref í að skýra ábyrgð og draga úr flækjustigi í þágu íslensks atvinnulífs. Samkvæmt frumvarpinu mun eftirlit með matvælum færast alfarið til Matvælastofnunar (MAST) á meðan eftirlit með hollustuháttum og mengunarvörnum, ásamt útgáfu starfsleyfa, færist til Umhverfis- og orkustofnunar. Samtökin hafa lengi talað fyrir slíkri sameiningu, enda eykur núverandi fyrirkomulag með fjölda sjálfstæðra heilbrigðisnefnda líkur á ósamræmi, tvíverknaði og óhagræði fyrir fyrirtæki.
Athugasemdir ESA og mikilvægi samræmis
SI telja breytingarnar ekki síst nauðsynlegar vegna alvarlegra athugasemda Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) við skipulag opinbers matvælaeftirlits hér á landi og hættunnar á ósamræmi í framkvæmd. Samtökin leggja áherslu á að ef ekki verður brugðist við þessum ábendingum strax gæti það haft neikvæð áhrif á matvælaiðnað og útflutning.
Leiðbeinandi og þjónustumiðað eftirlit
Eitt af lykilatriðunum í umsögn SI lýtur að vinnulagi og nálgun eftirlitsstofnana. Samtökin leggja ríka áherslu á að meginmarkmið eftirlits eigi að vera leiðbeinandi og þjónustumiðað. Stofnanir eigi að temja sér lausnamiðaða nálgun þar sem stuðningur við atvinnulífið er í fyrirrúmi til að tryggja að lögbundnum kröfum sé mætt. Fagna samtökin í því samhengi áformum um miðlægt stafrænt upplýsingakerfi sem mun auðvelda samskipti og auka gagnsæi.
Varað við auknum kostnaði
Þrátt fyrir almennan stuðning við breytingarnar lýsa SI áhyggjum af mögulegri kostnaðaraukningu. Samtökin benda á að raunveruleg hagræðing verði að eiga sér stað og að eftirlitsgjöld megi ekki hækka. Varað er við því að opinberar stofnanir velti óþarfa rekstrarkostnaði yfir á fyrirtæki og benda samtökin á dæmi þess að eftirlitskostnaður hafi margfaldast í fyrri kerfisbreytingum án þess að þjónustan hafi batnað sem því nemur.
Eftirlit með fagréttindum tryggi heilbrigða samkeppni
SI leggja áherslu á að nýtt eftirlitskerfi tryggi að kröfum um fagréttindi sé fylgt eftir. SI leggja til að við veitingu starfsleyfa verði gengið úr skugga um að fyrirsvarsmenn rekstrar hafi tilskilin fagréttindi, svo sem iðnmeistararéttindi þar sem það á við. Með virku eftirliti með fagþekkingu og réttindum megi takmarka áhættu í rekstri og koma í veg fyrir ólögmæta starfsemi sem skekkir samkeppnisstöðu þeirra fyrirtækja sem starfa lögmætt.
Hér er hægt að nálgast umsögnina í heild sinni.

