SI vara við áhrifum á iðnað vegna hækkunar veiðigjalda
Samtök iðnaðarins lýsa í umsögn sinni um veiðigjaldafrumvarp atvinnuvegaráðherra yfir áhyggjum af áhrifum frumvarpsins á íslenskan iðnað. SI benda á að fjölmörg iðnfyrirtæki reiði sig á viðskipti við sjávarútveginn og hafi í gegnum árin byggt upp verðmæta þekkingu og hátæknilausnir sem styrkt hafa útflutning og atvinnu víða um land. Því til viðbótar sé fjölbreyttur iðnaður víðs vegar um land sem veitir margvíslega aðra þjónustu við fyrirtæki í sjávarútvegi. Aðildarfyrirtæki SI hafi nú þegar fundið fyrir samdrætti, sérstaklega vegna loðnubrests, og óttast áhrif frumvarpsins til viðbótar.
Í umsögn SI er gagnrýnt að frumvarpið skorti nægjanlegt mat á áhrifum á nýsköpun, þjónustu- og tækniumhverfi sjávarútvegsins og mögulegum ruðningsáhrifum á aðrar atvinnugreinar. Þá hafi sum iðnfyrirtæki þegar orðið af verkefnum sem nemi hundruðum milljóna króna.
SI telur að ákvörðun um breytingar sem þessar verði ekki tekin án þess að fyrir liggi fullnægjandi áhrifamat. Jafnframt er hvatt til mótvægisaðgerða, svo sem hvatakerfa til fjárfestinga í fiskvinnslu og tækni, til að milda áhrifin og tryggja áframhaldandi framleiðslu og samkeppnishæfni í greininni.
Hér er hægt að nálgast umsögnina.