Fréttasafn



25. feb. 2026 Almennar fréttir Efnahagsmál Fréttatilkynning

Skattspor iðnaðar 564 milljarðar - stærst útflutningsgreina

Í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins og Reykjavík Economics kemur fram skattspor íslensks iðnaðar, vítt skilgreint, var 564 milljarðar króna á árinu 2024 samkvæmt útreikningum Reykjavík Economics. Stækkaði það frá árinu 2023 en þá nam það 549 milljörðum króna á verðlagi árs 2024. Skattspor íslensks iðnaðar, þröngt skilgreint, var 247 milljarðar króna árið 2024 og jókst það einnig á milli ára en það var 228 milljarðar króna árið 2023 á verðlagi árs 2024. Um er að ræða umtalsverða fjárhæð sem greinin skilar til samfélagsins í formi skatta enda er íslenskur iðnaður ein af undirstöðum íslensks efnahagslífs. Skattspor iðnaðarins er stærst meðal útflutningsgreina en til samanburðar nam vítt skilgreint skattspor ferðaþjónustunnar 190 milljörðum króna og þröngt skilgreint skattspor greinarinnar 108 milljörðum króna árið 2024. Þröngt skilgreint skattspor fiskveiða og -vinnslu nam tæplega 80 mö.kr. það ár.

Reykjavík Economics mat skattaleg áhrif iðnaðar árið 2024 fyrir Samtök iðnaðarins. Metin eru bæði þröng og víð skattaleg áhrif. Skattaleg áhrif taka til allra skatta og gjalda sem fyrirtæki í iðnaðinum greiða á viðkomandi ári. Þröngt skattspor samanstendur af tekjuskatti fyrirtækja, tryggingagjaldi, tekjuskatti og útsvari launþega ásamt mótframlagi atvinnurekenda í lífeyrissjóð og viðbótarlífeyrissparnað. Vítt skattspor er þröngt skattspor að viðbættum útskatti virðisaukaskatts og fasteignasköttum.

Skattspor-idnadar1

Stórt skattspor undirstrikar mikilvægi iðnaðarins

Þessar tölur undirstrika mikilvægi iðnaðarins fyrir skatttekjur ríkisins og endurspegla jafnframt umfang hans í hagkerfinu. Verðmætasköpun greinarinnar nam 900 milljörðum króna árið 2024, sem er um fjórðungur landsframleiðslunnar það ár. Þá störfuðu að jafnaði 52 þúsund manns í greininni, eða einn af hverjum fjórum á innlendum vinnumarkaði. Iðnaðurinn er jafnframt stærsta útflutningsgrein þjóðarbúsins og aflaði 750 milljarða króna í útflutningstekjur árið 2024, sem jafngildir 39% af heildarútflutningstekjum hagkerfisins á því ári. Að auki hefur greinin veruleg jákvæð áhrif á aðrar atvinnugreinar.

Iðnaður leggur mikið til atvinnusköpunar hér á landi og er í því sambandi skattspor hennar m.t.t. vinnuaflstengdra skattgreiðslna hátt eða 212 milljarðar króna árið 2024. Það er ekki einungis að í greininni starfi mikill fjöldi fólks heldur eru laun í greininni einnig há og yfir meðallaunum í hagkerfinu. Endurspeglar það háa framleiðni vinnuafls í greinum iðnaðar.

Reykjavík Economics reiknaði skattsporið út fyrir helstu greinar iðnaðarins. Atvinnugreinaflokkun ÍSAT2008 var nýtt við greininguna og iðnaðurinn flokkaður í byggingariðnað og mannvirkjagerð, tækni- og hugverkaiðnað og framleiðsluiðnað.

Skattspor-idnadar2 

 

Hér er hægt að nálgast greininguna í heild sinni.