Sköpun er yfirskrift Menntadags atvinnulífsins
Sköpun er yfirskrift Menntadags atvinnulífsins sem fram fer í Norðurljósum í Hörpu næstkomandi miðvikudag 5. febrúar kl. 8.30-11.30. Um er að ræða árlegan viðburð sem Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu standa að. Á Menntadegi atvinnulífsins verður fjallað að þessu sinni um sköpun í íslensku atvinnulífi og menntakerfi út frá fjölmörgum sjónarhornum og er dagskráin ætlum fyrir alla sem hafa áhuga á sköpun, menntamálum og þróun.
Hér er hægt að skrá sig.
DAGSKRÁ
Kl. 8.30-10
- Upphaf - Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.
- Skapandi starfsumhverfi - Halldóra Vífilsdóttir, arkitekt og verkefnastjóri Austurbakka hjá Landsbankanum.
- Lífeðlisfræðin og sköpun - Birna Kristrún Halldórsdóttir, ráðgjafi og vottaður LEGO SERIOUS PLAY leiðbeinandi hjá Attentus.
- Leikreglur í skapandi umhverfi - Dóra Jóhannsdóttir, leikkona, handritahöfundur og spunakona.
- Skapandi eða apandi? - Áslaug Baldursdóttir, kennari, hönnuður, ritstjóri og margt fleira.
- Er fyrirtækjarekstur listform? - Pétur Arason, frumkvöðull hjá Manino.
- Hönnunarhugsun í nýsköpun - Ívar Þorsteinsson, leiðtogi viðskiptaþróunar, viðskiptatengsla og markaðsstarfs hjá Kolibri.
- Með hjartað á réttum stað! - Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.
- Hvað er sköpun? - Markús Þór Andrésson, deildastjóri sýninga og miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur.
- Menntaverðlaun atvinnulífsins - Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhendir Menntaverðlaun atvinnulífsins 2020.
Kl. 10-10.30 Kaffi og með því. Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna fjölbreytt nám og þjónustu á menntatorgi.
Kl. 10.30-11.30
Málstofa
- Að vinna markvisst með sköpun í menntun og á vinnustaðnum - Camilla Uhre Fog, skólastjóri International Scool of Billund og fyrrum stjórnandi hjá Lego Foundation.
- Lesblinda - Sylvía Melsted, frumkvöðull og tónlistarkona, ásamt gestum.
Hér er hægt að skrá sig.