Fréttasafn



9. jan. 2018 Almennar fréttir

Skráning hafin á Smáþing

Litla Íslands efnir til Smáþings fimmtudaginn 1. febrúar en að því standa SA, SI, SAF, SVÞ og SFF.  Þingið fer fram á Hilton Reykjavík Nordica kl. 15.00-16.30. Hér er hægt að skrá sig á þingið. 

Á Smáþinginu verða markaðsmál lítilla og meðalstórra fyrirtækja í kastljósinu. Leitast verður við að svara spurningunum um hvernig á að ná í nýja viðskiptavini, hvernig á að halda núverandi viðskipavinum og hvað er að gerast á markaðnum. Tölur um umfang og mikilvægi lítilla og meðalstórra fyrirtækja verða birtar á þinginu auk þess sem bent verður á leiðir til að bæta starfsumhverfið. Frumkvöðlar segja reynslusögur og fram fara umræður.

Að loknum fundinum fer fram netagerð þar sem fjölbreytt þjónusta sem litlum og meðalstórum fyrirtækjum stendur til boða verður kynnt.

Smathing---taktu-daginn-fra!