Fréttasafn



2. okt. 2020 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Skráning hafin á Umhverfisdag atvinnulífsins

Skráning er hafin á Umhverfisdag atvinnulífsins sem verður haldinn miðvikudaginn 14. október í Norðurljósum í Hörpu kl. 8.30-10. Um árlegan viðburð er að ræða en að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.

Ávörp flytja Halldór Benjamín Þorbergsson, Ólafur Jóhann Ólafsson, rithöfundur, Kristín L. Árnadóttir, aðstoðarforstjóri LV, Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion, Jónína G. Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Terra, og Ari Edwald, forstjóri MS.

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, mun afhenda umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2020 sem veitt verða fyrirtækjum sem hafa staðið sig vel í umhverfismálum. Veitt verða tvenn verðlaun. Annars vegar verður umhverfisfyrirtæki ársins og hins vegar framtak ársins verðlaunað. 

Hér er hægt að skrá sig á viðburðinn.

Auglysing-1-