Fréttasafn



10. ágú. 2017 Almennar fréttir

Skráning hafin í Fast 50 og Rising Star

Opnað hefur verið fyrir skráningar í Fast 50 og Rising Star. Viðburðurinn er nú haldinn í þriðja sinn á vegum Deloitte í samstarfi við Samtök iðnaðarins, Félag kvenna í atvinnulífinu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Skráningarfrestur í Fast 50 er til 9. október og í Rising Star til 19. október. 
Fast 50 og Rising Star er alþjóðlegt verkefni sem miðar að því að skapa íslenskum tæknifyrirtækjum vettvang til að vekja athygli fjárfesta og annarra hagsmunaaðila vítt og breitt um heiminn á vexti og vaxtarmöguleikum sínum.

Fast 50 er ætlað fyrir ört vaxandi tæknifyrirtæki sem hafa verið starfandi í 4 ár, stofnuð 2013 og fyrr. Þátttökuskilyrðin eru fjögur: Fyrirtækið verður að vera íslenskt, hafa verið stofnað árið 2013 eða fyrr, vera í tæknitengdri starfsemi og hafa haft veltu árið 2013 yfir 6 milljónir króna og yfir 95 milljónir króna árið 2016. Fast 50 listinn verður birtur á Fast 50 og Rising Star viðburðinum sem haldin verður í nóvember. Listinn hefur að geyma nöfn þátttakenda og hlutfallslegan vöxt milli áranna 2013 og 2016.

Rising Star er ætlað fyrir frumkvöðla og sprota í tæknitengdum greinum sem hafa verið í starfsemi skemur en 4 ár, stofnuð 2013 eða síðar. Þátttökuskilyrðin eru fjögur: Fyrirtækið verður að vera íslenskt, hafa verið stofnað á árunum 2013-2016, vera í tæknitengdri starfsemi og hafa haft veltu yfir 1,2 milljón króna í fyrra og eru styrkir þar með taldir. Sérstök dómnefnd skipuð af fjölbreyttum hópi sérfræðinga fer yfir allar umsóknir og velur 4-6 fyrirtæki sem boðið er að kynna sig á Fast 50 og Rising Star viðburðinum, sem haldin verður í nóvember. Á þeim viðburði velur dómnefndin tvo sigurvegara. Í fyrra valdi dómnefnd Rising Star fyrirtækin Florealis og Crankwheel sem Rising Stars 2016. Árið 2015 voru valin fyrirtækin Authenteq og Kúla 3D.

Fjölbreyttur ávinningur

Fyrirtæki sem skrá sig í Fast 50 eða Rising Star eiga möguleika á að:

  • vera boðið á Slush í Helsinki í lok nóvember
  • funda með innlendum fjárfestum um næstu skref
  • kynna fyrirtækið fyrir erlendum fjárfestum
  • fá aukna umfjöllun um fyrirtækið
  • efla til muna sýnileika vörumerkja fyrirtækisins
  • vekja athygli innlendra og erlendra fjárfesta
  • skapa verðmæt tengsl þvert á landamæri
  • tengjast nýsköpunarteymum Deloitte víða um heim