Fréttasafn



23. maí 2025 Almennar fréttir Menntun Samtök menntatæknifyrirtækja

Skráning stendur yfir í Menntaþon

Skráning stendur yfir í Menntaþon 2025 sem er stafræn nýsköpunarkeppni í menntageiranum. Markmiðið er að virkja frumkvöðlahugsun, efla fjölbreytta kennsluhætti og tengja betur saman menntakerfið og atvinnulífið. Skráning stendur yfir til 27. maí. Verðlaunaafhending Menntaþons fer fram 6. júní.

Hér er hægt að skrá sig.

Lausnir fyrir framtíðarnám

Menntaþon 2025 er haldið að frumkvæði Samtaka menntatæknifyrirtækja (IEI), í samstarfi við Miðstöð menntunar og skólaþjónustu (MMS), IÐNÚ og Þróunarsjóð námsgagna, og er fyrir, leik- grunn- og framhaldsskóla. Þátttakendur vinna að lausnum í þremur flokkum:

  • Besta nýsköpunin sem eflir menntun
  • Kennslustofan
  • Námsgögn

Verkefni geta verið á hugmyndastigi eða í þróun, en sérstök áhersla er lögð á að lausnirnar endurspegli framtíðarnám og stuðli að raunverulegum breytingum í skólastarfi.

Skila þarf 3-5 mínútna kynningarmyndbandi með lausn þann 3. júní. Dómnefnd velur svo 3-5 bestu hugmyndirnar úr hverjum flokki. Þann 6. júní fer svo fram verðlaunaafhending, þar sem ein hugmynd úr hverjum flokki hlýtur 100.000 kr. í verðlaun.

Þverfagleg samvinna og stafrænt aðgengi

Keppnin er opin öllum sem hafa áhuga á þróun menntakerfisins og er þátttaka rafræn, sem auðveldar aðkomu allra. Lokaviðburðurinn fer fram 6. júní í Hyl, Borgartúni 35, þar sem efstu þrjú teymi kynna verkefni sín með örkynningum og verðlaun verða veitt með aðkomu fulltrúa skóla, atvinnulífs og menntunar.

Dómarar Menntaþonsins eru Arnar Már Sigurðsson, Teymisstjóri MMS, Íris E. Gísladóttir, stofnandi Evolytes, Heiðar Ingi Svansson, framkvæmdastjóri IÐNÚ og Ragnar Þór Pétursson, kennari á miðstigi og fyrrverandi formaður KÍ.