Fréttasafn



2. sep. 2016 Almennar fréttir Nýsköpun

Skráningar í Fast 50 & Rising Star eru hafnar

Fast 50 & Rising Star er alþjóðlegur fjárfesta- og kynningarviðburður fyrir frumkvöðla, sprota og tæknifyrirtæki í örum vexti sem Deloitte stendur fyrir. Samtök iðnaðarins eru samstarfsaðilar Fast 50 & Rising Star ásamt FKA, Íslandsbanka og NMÍ. Með þátttöku í Fast 50 & Rising Star fá íslenskir frumkvöðlar, sprotar og tæknifyrirtæki einstakt tækifæri til vekja athygli fjárfesta og annarra hagsmunaaðila vítt og breitt um heiminn á vexti sínum og vaxtarmöguleikum.

Ávinningurinn af þátttöku er fjölbreyttur og það kostar ekkert að skrá fyrirtæki. Fyrirtækin sem taka þátt í Fast 50 eða Rising Star eiga möguleika á að:

  • funda með innlendum fjárfestum um næstu skref
  • kynna fyrirtækið fyrir erlendum fjárfestum
  • hljóta 600 þúsund króna styrk frá Íslandsbanka
  • fá aukna umfjöllun um fyrirtækið
  • efla til muna sýnileika vörumerkja fyrirtækisins
  • vekja athygli innlendra og erlendra fjárfesta
  • skapa verðmæt tengsl þvert á landamæri
  • tengjast nýsköpunarteymum Deloitte víða um heim


Sérstök dómnefnd skipuð af fjölbreyttum hópi sérfræðinga fer yfir allar umsóknir og velur 4-6 fyrirtæki sem boðið er að kynna sig á Fast 50 & Rising Star viðburðinum – svokallaðri uppskeruhátíð íslenska tæknigeirans, sem haldin verður 9. nóvember næstkomandi.

Fast 50 er fyrir íslensk tæknifyrirtæki í örum vexti, sem hafa starfað í minnst fjögur ár og Rising Star er fyrir íslenska frumkvöðla og sprota sem hafa starfað skemur en í fjögur ár. Hægt er að skrá fyrirtæki á vefsíðunni www.fast50.is

Fast 50 hófst árið 1995 í Bandaríkjunum en teygir nú anga sína til um 40 landa og um 30 þúsund tæknifyrirtæki vítt og breitt um heiminn hafa skráð sig til leiks á þessum tíma. Fast 50 snýst í grunninn um að kortleggja þau tæknifyrirtæki sem vaxa hraðast m.t.t. veltuaukningar á hverju fjögurra ára tímabili og er slíkur listi birtur árlega. Allir þátttakendur í Fast 50 hérlendis eru gjaldgengir á sameiginlegan EMEA Fast 500 listann sem tekur til tæknifyrirtækja í Evrópu, Mið-Austurlanda og Afríku. Sá listi er gefinn út í nóvember ár hvert og fær iðulega mikla athygli alþjóðlegra fjárfestingarsjóða og annarra fjárfesta. Á meðal þeirra fyrirtækja sem tóku þátt í Fast 50 fyrra voru Thula Nordic Source Solutions, Meniga, AppDynamic, Nox Medical og Zymetech en þessi félög röðuðust öll á EMEA Fast 500 listann í fyrra, þar af fjögur þeirra á topp 150. Yfir 1.000 tæknifyrirtæki eru gjaldgeng á þann lista úr öllum Fast 50 viðburðunum á EMEA svæðinu.

Rising Star er haldið að alþjóðlegri fyrirmynd en sambærileg verkefni eru keyrð af aðildarfyrirtækjum Deloitte t.d. í Belgíu, Hollandi, Ísrael, Ástralíu, Nýja-Sjálandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum. Lykiláherslan í Rising Star er á vaxtarmöguleika fyrirtækja. Í fyrra valdi Rising Star dómnefndin fyrirtækin Authenteq, Flygildi, Geosilica, Kúla 3D, Solid Clouds og dent & buckle til að kynna sig og hlutu Authenteq og Kúla 3D titilinn Rising Star 2015.