Fréttasafn



2. maí 2024 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun Samtök sprotafyrirtækja

SSP og SI taka þátt í Nýsköpunarvikunni

Samtök sprotafyrirtækja og Samtök iðnaðarins taka þátt í Nýsköpunarvikunni með viðburði föstudaginn 17. maí kl. 15.15. Yfirskrift viðburðarins er The Bold and the Beautiful: Iceland Startup-Industry Speed Dating. Viðburðurinn fer fram í pop-up rými á Hafnartorgi. 

Fulltrúar eftirtaldra aðildarfyrirtækja veita frumkvöðlum innblástur og gefa góð ráð:

Efla / Steypustöðin / BM Vallá / Svansprent / Rafal / Arkibygg / Controlant / Alvotech / Marel / Héðinn / Origo / Össur / Myllan ORA / Borealis Data Center / Nox Medical / CCP / Matís / Coca-Cola European Partners Ísland

Á vef Iceland Innovation Week er hægt að nálgast dagskrá Nýsköpunarvikunnar og aðrar upplýsingar.

Myndin hér fyrir ofan er frá hraðstefnumóti sem samtökin stóðu fyrir á síðasta ári.