Stærstu tækifæri til vaxtar hagkerfisins liggja í iðnaði
Tilvist iðnaðar hér á landi er ekki sjálfgefin. Framlag greinarinnar til efnahagslegrar velmegunar grundvallast á því umhverfi sem greininni er búið. Stærstu tækifæri til vaxtar íslenska hagkerfisins til framtíðar liggja í iðnaði. Þetta segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, meðal annars í grein í ViðskiptaMogganum undir yfirskriftinni Íslenskur iðnaður verðmætur en ekki sjálfgefinn. Hann segir að Samtök iðnaðarins hafi unnið að því að efla samkeppnishæfni íslensk iðnaðar í þágu samfélagsins alls með því að leggja áherslu á þau málefni sem efli samkeppnishæfni landsins. Þau málefni sem mestu skipta séu starfsumhverfi, mannauður, nýsköpun og innviðir en einnig orku- og umhverfismál. Hann segir að samtökin hafi sagt að tryggja þurfi aukið framboð af grænni orku til fullra orkuskipta og uppbyggingar í iðnaði um allt land, fjölga þurfi iðn-, tækni- og verkmenntuðu starfsfólki, greiða götu framkvæmda og setja kraft í innviðafjárfestingu, ekki síst í samgöngum, húsnæði og orkuskiptum. „Með umbótum stjórnvalda á þessum sviðum eflist geta hagkerfisins til að skapa verðmæti og störf sem bætir lífskjör landsmanna.“
Stór hluti tekna íslenskra heimila koma frá störfum í iðnaði
Í grein Ingólfs kemur fram að hér á landi starfi nú 50 þúsund manns í iðnaði sem sé um 22% af heildarfjölda starfandi á íslenskum vinnumarkaði. Störfin séu fjölbreytt í stórum og litlum iðnfyrirtækjum um allt land. Fyrirtækin í útflutningi og á innlendum markaði séu í hugverkaiðnaði, framleiðsluiðnaði og byggingariðnaði og mannvirkjagerð. Umfang og fjölbreytni greinarinnar á innlendum vinnumarkaði sé mikill styrkur fyrir landsmenn þar sem greinin bjóði upp á fjölda ólíkra tækifæra. Þá kemur fram að samhliða kröftugum vexti iðnaðar á síðustu árum hafi starfandi í greininni fjölgað umtalsvert. Í heild telji fjölgunin 14.000 störf yfir síðustu tíu ár. Það sé um 28% af heildarfjölgun starfa í hagkerfinu öllu á tímabilinu. Laun í greininni séu há og yfir meðallaunum í hagkerfinu. Endurspegli það háa framleiðni vinnuafls í greinum iðnaðar og stór hluti tekna íslenskra heimila komi því frá störfum í iðnaði. Þá segir Ingólfur í greininni að hlutur iðnaðar í fjölgun starfa síðustu ár gefi vísbendingu um þátt greinarinnar í aukinni verðmætasköpun á þessu tímabili. Verðmætasköpun iðnaðar sé umtalsverð en hún hafi numið 884 mö.kr. á síðasta ári sem sé um fimmtungur af heildarverðmætasköpun hagkerfisins. Ljóst sé að virðiskeðja iðnaðarins hafi mikil og jákvæð áhrif á starfsemi fyrirtækja fyrir utan greinina. Vægi greinarinnar í verðmætasköpun sé því meira en ofangreindar tölur sýni ef óbein áhrif greinarinnar séu tekin með.
Iðnaður er stærsta útflutningsgreinin
Einnig kemur fram í greininni að stór þáttur í verðmætasköpun greinarinnar eigi sér stað með útflutningi. Í nýlegri greiningu Samtaka iðnaðarins um útflutning iðnaðar komi fram að útflutningstekjur greinarinnar hafi numið 698 ma.kr. í fyrra sem sé 38% af heildarútflutningstekjum þjóðarbúsins á því ári. Til samanburðar námu útflutningstekjur ferðaþjónustunnar á síðasta ári 598 mö.kr. (32%) og sjávarútvegs 352 mö.kr. (19%). Iðnaður sé því stærsta útflutningsgreinin. Það sé ekki síst í því ljósi sem miklu máli skiptirmeð hvaða hætti greinin þróast.
Skattspor iðnaðar umfangsmikið og hefur stækkað
Þá segir Ingólfur í greininni að mikil verðmætasköpun iðnaðar hér á landi skili sér í því að skattspor greinarinnar sé umfangsmikið. Með skattspori sé átt við framlag iðnaðarins til samfélagsins í formi skattgreiðslna og þar með framlag greinarinnar til fjármögnunar þátta á borð við heilbrigðis- og menntamála þjóðarinnar. Heildarskattspor iðnaðar hafi numið 462 mö.kr. árið 2022 samkvæmt niðurstöðum Reykjavík Economics en SI fengu fyrirtækið til þess að reikna skattspor iðnaðarins fyrir árið 2022 með sambærilegum hætti og hafi verið gert fyrir aðrar atvinnugreinar. Þröngt skattspor iðnaðarins sé 213 ma.kr. og sé það stærst allra útflutningsgreina. Til samanburðar hafi þröngt skattspor ferðaþjónustunnar numið 92 ma.kr. og sjávarútvegsins 85 ma.kr. árið 2022. Ingólfur segir að skattspor iðnaðarins hafi stækkað síðustu ár en það hafi numið 370 mö.kr. árið 2020 á verðlagi ársins 2022.
Hér er hægt að lesa grein Ingólfs í heild sinni.
Morgunblaðið, 31. júlí 2024.