Fréttasafn



5. mar. 2018 Almennar fréttir

Starfsmenn SI skrifa undir sáttmála gegn einelti og áreitni

Starfsmenn SI hafa skrifað undir sáttmála gegn einelti, áreitni og ofbeldi og taka þar með þátt í því að hafna öllu slíku á vinnustaðnum. Í sáttmálanum segir að öryggiskennd og góður starfsandi skipti sköpum fyrir vellíðan starfsmanna og að á vinnustaðnum eigi starfsmenn góð samskipti.

Í sáttmálanum kemur þetta fram:

  • Við þekkjum stefnu og viðbragðsáætlun fyrirtækisins gegn einelti, kynferðislegri og kynbundinni áreitni og ofbeldi og erum meðvituð um skyldur okkar.
  • Við líðum ekki einelti, áreitni eða ofbeldi, beitum því ekki og vitum að meðvirkni með geranda getur skaðað starfsmenn og vinnustað okkar.
  • Við berum sameiginlega ábyrgð á vinnuumhverfinu og leggjum okkar af mörkum til að bæta það enn frekar.
  • Við erum ólík, með mismunandi bakgrunn og lífsskoðanir, en sýnum hvert öðru virðingu í öllum samskiptum.
  • Við skiljum að upplifun af samskiptum er mismunandi og gerum ekki lítið úr viðbrögðum og tilfinningum annarra.
  • Við ræðum um framkomu sem okkur mislíkar og tökum upp varnir fyrir þá sem brotið er gegn.
  • Við tökum tillit til ábendinga um að við getum bætt framkomu okkar.
  • Við sýnum öðrum kurteisi og virðingu í öllum samskiptum.

Sattmali-plaggid