Fréttasafn



16. feb. 2026 Almennar fréttir Menntun Samtök menntatæknifyrirtækja

Stjórn IEI endurkjörin og áhersla á aukið alþjóðlegt samstarf

Ársfundur Samtaka menntatæknifyrirtækja (IEI) fór fram 12. febrúar þar sem farið var yfir starfsemi ársins 2025, kosin ný stjórn og mótaðar áherslur fyrir komandi ár. Fundarstjóri og fundarritari var Hulda Birna Kjærnested.

Öflug starfsemi og aukin sýnileiki

Í skýrslu stjórnar kom fram að árið 2025 hafi einkennst af vexti og aukinni þátttöku IEI í stefnumótun á sviði menntatækni. Sérstök áhersla var lögð á gagnvirk námsgögn, evrópskt samstarf, meðal annars í gegnum European EdTech Alliance (EEA). Greint var frá endurræsingu European EdTech Map í september 2025, sem nú er stærsta opinbera skrá yfir menntatæknifyrirtæki í Evrópu með yfir 1.600 skráðar einingar. Samþykkt var að hvetja öll aðildarfyrirtæki IEI til að skrá sig eða uppfæra prófíla sína á kortinu til að efla sýnileika og aðgengi að fjármögnun og samstarfi. Markmið EEA er að ná 2.500 fyrirtækjum á kortið á næstu misserum.

Stjórn IEI endurkjörin

Kosning stjórnar fór fram samkvæmt lögum samtakanna og var stjórnin endurkjörin. Íris E. Gísladóttir, stofnandi og rekstrarstjóri Evolytes, er formaður IEI og Hinrik Jósafat Atlason, framkvæmdastjóri Atlas Primer, varaformaður. Meðstjórnendur eru Jón Gunnar Þórðarson (Bara tala), Heiðar Ingi Svansson (Iðnú), Guðmundur Axelsson (Beedle), Helgi Sigurður Karlsson (Beanfee), Brynja Baldursdóttir (InfoMentor, Inna), Kristrún Birgisdóttir (AIS ehf.) og Guðmundur Arnar Guðmundsson (Akademías/Avia).

Vaxandi grein með mikil tækifæri

IEI, sem starfar innan Samtaka iðnaðarins, var stofnað árið 2022 og sameinar fyrirtæki í ört vaxandi alþjóðlegum menntatækniiðnaði. Markmið samtakanna er að efla hagsmuni greinarinnar, bæta rekstrarskilyrði og styrkja samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja á alþjóðlegum vettvangi.

Menntatækni spannar fjölbreytt svið. Annars vegar eru gagnvirk námsgögn og stafrænar kennslulausnir sem veita kennurum og skólastjórnendum rauntímagögn um stöðu og framvindu nemenda, styðja við einstaklingsmiðað nám og bæta yfirsýn yfir árangur og gæði. Hins vegar eru lausnir sem snúa að mannauðsmálum, símenntun og starfsþróun innan fyrirtækja og háskóla, þar sem tækni er nýtt til að efla hæfni, styðja við inngildingu og styrkja samkeppnishæfni vinnumarkaðarins.

Með öflugu samstarfi innanlands og erlendis, skýrri stefnumótun og virku samtali við stjórnvöld er framtíðarsýn IEI björt. Starf samtakanna er mikilvægt framlag til þróunar íslensks menntakerfis og mannauðs í atvinnulífinu og styður við það hlutverk Samtaka iðnaðarins að efla samkeppnishæfni og verðmætasköpun í íslensku atvinnulífi.