Fréttasafn



10. mar. 2020 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Stjórn Málms heimsækir Tækniskólann

Stjórn Málms heimsótti Tækniskólann og málmsvið skólans fyrir skömmu. Markmiðið með heimsókninni var að kynnast kennsluháttum og kennsluaðstöðunni ásamt því að ræða aðsókn í nám í málmgreinum og hvernig hún hefur þróast.

Á myndinni hér fyrir ofan eru, talið frá vinstri, Helgi Guðjónsson, Stefán Sigurðsson, Jón Þór Þorgrímsson, Jón Hjalti Ásmundsson, skólastjóri Skipstjórnar- og véltækniskólans, Guðmundur Ólafur Halldórsson, kennari, Ólafur R. Guðjónsson, Daníel Óli Óðinsson, Haraldur Harðarson kennari, Bjarni Thoroddsen og Guðmundur Ragnarsson kennari.