Stjórn Samtaka iðnaðarins fagnar nýrri atvinnustefnu
Stjórn Samtaka iðnaðarins (SI) fagnar nýrri atvinnustefnu Íslands og aðgerðaráætlun sem fylgir stefnunni. Samtökin hafa lengi kallað eftir heildstæðu vaxtarplani fyrir Ísland og telja að stefnan geti orðið stökkpallur inn í næsta hagvaxtarskeið. Í nýrri atvinnustefnu felast tækifæri til að efla íslenskan iðnað, auka framleiðni og bæta lífskjör hér á landi.
Árangurinn mun að miklu leyti velta á þeim aðgerðum sem ráðist verður í til að fylgja eftir metnaðarfullum markmiðum en það er mat stjórnar SI að með því að setja samkeppnishæfni landsins í forgang og ryðja heimatilbúnum hindrunum úr vegi geti íslenskur iðnaður leitt vöxt hagkerfisins. Samtökin lýsa yfir vilja til áframhaldandi samstarfs við stjórnvöld um farsæla innleiðingu stefnunnar þannig að hún geti eflt íslenskan iðnað í þágu samfélagsins alls.

