Tækifæri nýrra sveitarstjórna um allt land
Nýjar sveitarstjórnir taka nú til starfa um land allt eftir kosningar helgarinnar. Öflugu fólki sem býður fram krafta sína í þágu samfélagsins er óskað til hamingju með kjörið og óskað velfarnaðar í þeim mikilvægu verkefnum sem fram undan eru. Það er mikið í húfi fyrir íslenskt samfélag. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í grein í Morgunblaðinu undir yfirskriftinni Tækifæri nýrra sveitarstjórna um allt land. Hann segir að þau sem setjist nú í sveitarstjórnir standi frammi fyrir skýrum valkostum. Annars vegar sé leiðin þar sem fundinn sé samhljómur um brýn og nauðsynleg framfaramál þar sem stefna og aðgerðir liðki fyrir uppbyggingu og laði til sín íbúa og atvinnustarfsemi. Hins vegar sé leiðin þar sem deilur og sundrung tefji fyrir og þá sé hætta á að íbúar og fyrirtæki sjái framtíðina fyrir sér í öðrum sveitarfélögum. „Veldur hver á heldur. Við hjá Samtökum iðnaðarins hlökkum til samstarfs við nýjar sveitarstjórnir um allt land.“
Sveitarstjórnir senda skýr skilaboð með orðum sínum og athöfum
Sigurður segir í greininni að sveitarstjórnir ráði miklu um þróun samfélagsins. Stöðugleiki á húsnæðismarkaði, sem varði hag allra landsmanna, sé að miklu leyti undir þeim kominn. Uppbygging innviða sé að talsverðu leyti á þeirra ábyrgð. Virkjanir, borholur og raflínur séu háðar leyfum sveitarfélaga en orka sé víða grunnur nýrra tækifæra. Hann segir að sveitarstjórnir gegni lykilhlutverki í þessari þróun og sendi skýr skilaboð með orðum sínum og athöfnum, með skipulagi, leyfisveitingum, gjaldtöku, þjónustu og viðmóti. Þau skilaboð ráði miklu um það hvort fyrirtæki sjá tækifæri til að fjárfesta og hvort fólk sér framtíð fyrir sér á staðnum.
Atvinnulíf ein mikilvægasta forsenda sterks samfélags
Þá kemur fram í grein Sigurðar að blómlegt atvinnulíf sé ein mikilvægasta forsenda sterks samfélags. Uppbygging fyrirtækja skapi ekki aðeins bein störf heldur einnig fjölmörg afleidd störf og styrki rekstur annarra fyrirtækja, þjónustu og sveitarfélaga. Verðmætasköpun leiði þannig til aukinnar velferðar, betri þjónustu og sterkari samfélaga. Þegar sveitarfélög, atvinnulíf og íbúar vinni saman verði til jarðvegur fyrir fjölbreytt atvinnulíf sem styrki samfélög til framtíðar.
Samstillt átak sveitarfélaga, atvinnulífs og íbúa
Í grein sinni bendir Sigurður á að í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga hafi Samtök iðnaðarins gert greinargóða úttekt á þeim málefnum sem varða innviðauppbyggingu, húsnæði og starfsumhverfi fyrirtækja. Hann segir að við blasi uppsöfnuð innviðaskuld, langvarandi lóðaskortur, hækkuð gjöld á íbúðauppbyggingu og hækkun fasteignaskatta. Á því kjörtímabili sem nú sé að hefjast verði það meðal annars viðfangsefni sveitarstjórna um allt land að mæta þessum áskorunum. Í niðurlagi greinar sinnar segir Sigurður að með samstilltu átaki sveitarfélaga, atvinnulífs og íbúa sé hægt að byggja upp öflug samfélög um allt land þar sem verðmætasköpun, stöðugleiki og lífsgæði fari saman. Þar liggi stærstu tækifærin til framtíðar.
Hér er hægt að lesa grein Sigurðar í heild sinni.
Morgunblaðið, 18. maí 2026.

