Tannsmiðir með fræðslufund um samkeppnismál
Tannsmiðafélag Íslands, sem er aðildarfélag SI, efnir til fræðslufundar um samkeppnismál miðvikudaginn 21. nóvember næstkomandi kl. 17.00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 1. hæð.
Á fundinum mun Björg Ásta Þórðardóttir, lögfræðingur SI, fara stuttlega yfir samkeppnismál innan SI, og Jóna Björk Helgadóttir, lögmaður, fræðir fundarmenn um samkeppnismál.
Hér er hægt að skrá sig á fundinn.