Fréttasafn



19. maí 2021 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Þarf skýra stefnumörkun um samkeppnisrekstur hins opinbera

Stefnumörkun ríkis og sveitarfélaga um samkeppnisrekstur sinn þarf að vera skýr og þarf að setja skýr viðmið um það hvenær og með hvaða hætti metin sé þörf fyrir reksturinn og hvort ástæða sé til að gera á honum breytingar. Þetta segir Björg Ásta Þórðardóttir, yfirlögfræðingur SI, í grein í ViðskiptaMogganum. Hún segir að ein af lykilforsendum þess að íslenskt atvinnulíf dafni og samkeppnishæfni þess aukist sé að fyrirtæki starfi í virkri og heilbrigðri samkeppni. Ljóst sé að í litlu hagkerfi og fámenni séu ýmsar áskoranir sem mikilvægt sé að huga sérstaklega að. Draga þurfi úr aðgangshindrunum á markaði og tryggja að öll fyrirtæki starfi eftir sömu leikreglum. Leikreglum sem stjórnvöld setja og framfylgja. Markmiðið sé að búa til heilbrigðan samkeppnismarkað sem sé til þess fallinn að lækka verð, auka gæði, bæta þjónustu og stuðla að nýsköpun. Það séu auk þess fyrirtækin á þessum markaði sem sæki tækifæri út fyrir landsteinana og skapi nauðsynlegar útflutningstekjur.

Óljóst hvort í reynd sé um samkeppnisrekstur að ræða

Björg Ásta segir að samhliða því að reglusetja hina ýmsu markaði, ýmist með sér-íslenskum reglum eða reglum innri markaðsins, starfi ríkið og sveitarfélög á samkeppnismarkaði. Fyrirtæki í eigu ríkis eða sveitarfélaga og opinberar stofnanir selji þjónustu og vörur í beinni samkeppni við fyrirtæki. Hið opinbera hafi lengi vera beinn þátttakandi í íslensku atvinnulífi og spanni samkeppnisrekstur hins opinbera nokkuð breitt svið. Allt frá meðhöndlun úrgangs til veitingar fjármálaþjónustu. Ennfremur sé form samkeppnisrekstursins ólíkt og þykir sumum óljóst hvort í reynd sé um samkeppnisrekstur að ræða. Hún nefnir ráðgjafarþjónustu ríkisstofnana til annarra stofnana, gegn gjaldi.

Hið opinbera í samkeppni um framleiðslu á malbiki og viðhaldi á götulýsingum

Þá kemur fram í greininni að það sé eðlilegt að meta stöðugt þörf fyrir samkeppnisrekstur opinberra aðila og hvort gera þurfi breytingar á rekstri þeirra til að ná því markmiði að styrkja samkeppni, með öllum þeim ábata sem því fylgir. Það sé ennfremur eðlilegt að meta hvort yfirhöfuð sé fýsilegt að opinberir aðilar starfi í beinni samkeppni við einkaaðila. Oft sé við það miðað að ríkið starfi á mörkuðum þar sem markaðsbrestur ríki og tryggja þurfi að tiltekin þjónusta eða vara sé tiltæk. Björg Ásta segir þessi viðmið þó ekki einhlít og ljóst að opinberir aðilar starfi á markaði þar sem enginn markaðsbrestur ríkir og samkeppni sé virk. Megi þar nefna framleiðslu á malbiki og viðhald á götulýsingum.

Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni. 

ViðskiptaMogginn, 19. maí 2021.