Fréttasafn



3. des. 2020 Almennar fréttir Menntun

Tilnefningar fyrir menntaverðlaun atvinnulífsins

Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent í Hörpu fimmtudaginn 4. febrúar 2021 þegar Menntadagur atvinnulífsins verður haldinn í 8. skiptið. Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.

Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Fyrirtækjum er velkomið að tilnefna sig sjálf. Tilnefningar sendist í tölvupósti til SA á verdlaun@sa.is eigi síðar en mánudaginn 21. desember.

Verðlaun eru veitt í tveimur flokkum. Menntafyrirtæki ársins er valið og menntasproti ársins útnefndur, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið. Á þessu ári var Orkuveita Reykjavíkur menntafyrirtæki ársins og Samkaup menntasproti ársins. Myndin er fyrir ofan er frá afhendingu viðurkenninganna. 

Menntafyrirtæki ársins - helstu viðmið:

  • að skipulögð og markviss fræðsla sé innan fyrirtækisins
  • að sem flest starfsfólk taki virkan þátt
  • að haldið sé utan um mælikvarða í fræðslumálum
  • að hvatning sé til staðar til frekari þekkingaröflunar

Menntasprota ársins - helstu viðmið:

  • að lögð sé stund á nýsköpun í menntun og fræðslu, innan fyrirtækis og/eða í samstarfi fyrirtækja,
  • samstarf fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu, innan sem utan fyrirtækja.

Skýr og skipulögð gögn hjálpa dómnefnd að meta tilnefningar. Óskað er eftir að greinargerð sé skilað að hámarki þrjár A4 blaðsíður þar sem rökstutt er hvers vegna viðkomandi fyrirtæki er tilnefnt og hvernig það uppfyllir viðmiðin sem liggja til grundvallar.