Fréttasafn



4. sep. 2020 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Tilnefningar fyrir Umhverfisverðlaun atvinnulífsins

Samtök atvinnulífsins og aðildarfélög óska eftir tilnefningum til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins fyrir 11. september. Verðlaunin eru veitt af forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessyni, á Umhverfisdegi atvinnulífsins 14. október í Hörpu.

Tekið er við tilnefningum með tölvupósti á sa@sa.is merktum „Tilnefning til Umhverfisverðlauna atvinnulífsins“. Veitt eru tvenn verðlaun; umhverfisfyrirtæki ársins og framtak ársins.

Dómnefnd velur úr tilnefningum og mun meðal annars skoða eftirfarandi þætti:

Umhverfisfyrirtæki ársins

  • Hefur innleitt umhverfisstjórnunarkerfi
  • Hefur aflað viðurkenninga fyrir starfsemina/afurðirnar
  • Hefur sjálfbæra nýtingu í stefnu sinni
  • Hefur dregið úr úrgangi og nýtir aðföng vel
  • Innra umhverfi er öruggt
  • Áhættumat hefur verið gert fyrir starfsemina
  • Gengur lengra en lög og reglur segja til um til að draga úr áhrifum starfseminnar á umhverfið

Framtak ársins

  • Hefur efnt til athyglisverðs átaks til að draga úr umhverfisáhrifum af starfsemi sinni
  • Hefur komið fram með nýjung – vöru, þjónustu eða aðferð – sem hefur jákvæð umhverfisáhrif

Að Umhverfisdegi atvinnulífsins standa Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Samtök verslunar og þjónustu.

Hér er hægt að skrá sig á viðburðinn sem verður 14. október.