Tollaflokkun osta skiptir máli fyrir innlenda framleiðslu
Ef við ætlum að vera með landbúnað á Íslandi, ef við ætlum að vera með mjólkurframleiðslu á Íslandi, þá þurfum við að búa því þannig umhverfi að það sé einfaldlega hægt. Og þetta er bara hluti af því segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði (SAFL), meðal annars í þættinum Þetta helst á RÚV þar sem ostar voru til umfjöllunar, nánar tiltekið pítsaostur með íblandaðri jurtaolíu en Landsréttur vísaði á miðvikudaginn frá máli Danól ehf. gegn ríkinu vegna þessarar tollflokkunar. Það er Ingvar Þór Björnsson sem ræðir við Margréti og Ólaf Stephensen, framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda.
Margrét segir í þættinum að eðli tolla sé til þess að styðja við innlenda framleiðslu. „Öll okkar viðskiptalönd nota tolla og langflest lönd í heiminum nota tolla til þess að styðja við sína framleiðslu. Og þetta er í rauninni bara stór hluti af, og í þessu tilfelli þá er þetta stór hluti af stuðningskerfi landbúnaðarins. Þannig að það skiptir máli að þetta haldi.“ Hún segir að þessi tollaflokkun skipti máli fyrir innlenda framleiðslu. „Þegar að við sáum, þegar að innflutningur á þessari vöru var sem mestur, þá vorum við að tala um 300 tonn sem að var flutt inn í þessum flokki, sem sagt í þessum tollflokki sem menn vilja flokka þessa tilteknu vöru í. Það er verulega mikið magn af mjólk, það eru 3 milljónir lítra af mjólk sem að við sáum þá. Ef að það yrði hins vegar afnuminn allur tollur af þessari vöru, þá er rifostamarkaðurinn á Íslandi, hann telur í, hann er orðinn aðeins stærri og þá ertu kannski kominn með framleiðslutuga framleiðslutuga kúabúa á Íslandi. Þannig að sannarlega hefur þetta gríðarlega mikil áhrif. Þarna undir eru miklir hagsmunir sem að einmitt hefur leitt til þess að við hjá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði, ásamt Bændasamtökum Íslands, smáframleiðendum, ungum bændum, höfum verið í samskiptum við stjórnvöld um mikilvægi þess að tollvernd haldi. Vegna þess að það er líka, við verðum að passa upp á það að að við getum ekki kippt einu úr sambandi án þess að annað komi í staðinn.“
Hér er hægt að hlusta á viðtalið í heild sinni.
RÚV, 13. mars 2026.

