Fréttasafn



12. mar. 2018 Almennar fréttir Nýsköpun

Umsóknum um einkaleyfi fækkar

Í ViðskiptaMogganum er greint frá því sem kemur fram í skýrslu Samtaka iðnaðarins, Ísland í fremstu röð - eflum samkeppnishæfnina, að fjöldi einkaleyfa á Íslandi sé úr takt við þróun erlendis. Umsóknum sem Einkaleyfastofunni bárust frá íslenskum aðilum vegna tæknilegra uppfinninga hefur fækkað um 40% frá árinu 2007 til ársins 2017. 

Í fréttinni segir að þetta sé öfugt við alþjóðlega þróun því á sama tímabili sexfaldaðist heildarfjöldi umsókna, frá erlendum aðilum meðtalið, um einkaleyfi hér á landi. Árið 2017 tók Einkaleyfastofan á móti yfir 1.500 umsóknum um einkaleyfi á Íslandi, en 3,5% þeirra umsókna komu frá íslenskum lögaðilum sem er einnig lágt í sögulegum samanburði, segir í skýrslunni. 

Einungis tvö einkaleyfi eru í gildi hjá íslenskum aðilum í orkuiðnaði, segir í skýrslu samtakanna, og ekkert í jarðvarmaiðnaði. Samt sem áður hafi Ísland náttúrulegt forskot, þrátt fyrir að háum fjárhæðum hafi verið varið í rannsóknir og þróun í þeim greinum. Í skýrslunni segir að það geti veikt samkeppnisstöðu Íslands til lengri tíma litið. Skýrsluhöfundar vekja athygli á tengdu atriði. 

Þegar horft er til þess hvaða nám fólk velur sér sést að Ísland var með hlutfallslega fáa skráða í STEM-fögin svokölluðu á árinu 2016 en þau taka til stærðfræði, raunvísinda, verkfræði og tæknifaga. Hlutfallið er með því lægsta innan OECD, 19% á Íslandi og 26% að meðaltali í OECD. Þessi mælikvarði er oft notaður til að meta tækifæri landa til framþróunar og nýsköpunar og er því nátengdur samkeppnishæfni, segir í skýrslunni. 

Morgunblaðið, 8. mars 2018.