Fréttasafn



4. maí 2015 Nýsköpun

Una skincare hlýtur viðurkenningu fyrir bestu markaðs- og aðgerðaáætlun

Á ársfundi Íslandsstofu í síðustu viku hlaut fyrirtækið UNA skincare viðurkenningu fyrir bestu markaðs- og aðgerðaáætlun í útflutningsverkefninu Útflutningsaukning og hagvöxtur (ÚH). Einnig fór fram á fundinum útskrift fyrirtækja, sem luku ásamt UNA skincare, ÚH verkefninu sem hefur það markmið að aðstoða fyrirtæki sem stefna á alþjóðamarkað við að gera markaðs- og aðgerðaáætlun. Rúmlega 200 fyrirtæki hafa frá upphafi tekið þátt í verkefninu sem hefur verið starfrækt síðastliðin 25 ár.

Í ár luku sjö fyrirtæki við gerð áætlunarinnar sem unnin er á sjö mánaða tímabili. Íslandsstofa hittir fyrirtækin einu sinni í mánuði, tvo daga í senn og fá þau aðstoð ráðgjafa við vinnuna auk þess sem haldnir eru fyrirlestrar um þá þætti sem hafa ber í huga við markaðs- og aðgerðaáætlanagerð fyrir útflutning. Íslandsstofa hefur verið í samstarfi viðskiptafræðideild Háskóla Íslands vegna verkefnisins og fá nemar í alþjóðamarkaðssetningu tækifæri til að koma inn í verkefnin og starfa með fyrirtækjunum að greiningu á markaðstækifærum.

Verðlaunahafinn UNA skincare þróar og framleiðir vandaðar, náttúrulegar húðvörur. Húðvörurnar innihalda einstök lífvirk efni sem einangruð eru úr íslenskum sjávarþörungum. Rannsóknir hafa staðfest að vörurnar hafa mjög jákvæð áhrif á húðina. Viðfangsefni verkefnisins var útflutningur á UNA skincare húðvörum til Þýskalands.

Fyrirtæki sem hafa tekið þátt í ÚH eru af öllum stærðum og gerðum. Þar má nefna fyrirtæki á borð við Össur og Marel sem tóku þátt í upphafi. Einnig Mentor, True North, Jarðböðin, TrackWell, Sæmark, Batteríið Arkitektar, Mannvit og Nói Síríus. Sum fyrirtækin eru ung og að stíga fyrstu skrefin á erlendan markað, önnur eru rótgróin og hafa verið í útflutningi um hríð en vilja gera vinnu sína markvissari og skilvirkari.

Samstarfsaðilar Íslandsstofu í verkefninu eru Samtök iðnaðarins, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnulífinu og Landsbanki Íslands.

Á hópmynd frá vinstri Björn H. Reynisson, verkefnisstjóri, verðlaunahafinn Brynhildur Ingvarsdóttir, UNA skincare, Martha Eiríksdóttir, Lítill heimur ehf., Garðar Þorvarðsson, Kvikna ehf., Arnhildur Ásdís Kolbeins, RST Net ehf., Nadine Walter, Sæferðir ehf.,  Vilborg Einarsdóttir, formaður stjórnar og Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu.