Fréttasafn



9. jún. 2026 Almennar fréttir Mannvirki Samtök rafverktaka

Upp­bygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfs­greinar

Opinber umræða um íbúðauppbyggingu varðar oftast fjölda íbúða í uppbyggingu, skipulag eða kostnað. Sjaldnar er þó rætt um þann gríðarlega fjölda fólks og fyrirtækja sem kemur að uppbyggingarverkefnunum á einn eða annan hátt. Nýtt íbúðahverfi er í raun með stærri samstarfsverkefnum sem hægt er að koma að og getur kallað á þátttöku allt að 250 starfsgreina frá fyrstu hugmynd að daglegum rekstri hverfisins. Þetta segir Kristján Daníel Sigurbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka rafverktaka og viðskiptastjóri á mannvirkjasviði Samtaka iðnaðarins, í grein á Vísi

Kristján segir að þegar nýtt land sé tekið undir íbúabyggð hefjist langt og flókið ferli sem nái langt út fyrir sjálfan byggingariðnaðinn. Þar komi saman sérfræðingar í lögfræði, fjármálum, arkitektúr, verkfræði, skipulagsmálum, stjórnsýslu, umhverfisvísindum, iðngreinum og þjónustu. Hver ný íbúð og gata sé þannig afrakstur samstarfs fjölda einstaklinga, fyrirtækja og stofnana sem vinni að sama markmiði. Hann segir að þetta undirstriki að íbúðauppbygging snúist ekki einungis um húsnæði heldur einnig um atvinnu- og verðmætasköpun. Hver ný íbúð skapi verkefni fyrir fjölda fyrirtækja, styrki aðfangakeðjur og stuðli að fjölbreyttum störfum víðs vegar um hagkerfið. 

Þá kemur fram í grein Kristjáns að samkvæmt greiningu Samtaka iðnaðarins mælist atvinnuleysi umtalsvert innan byggingariðnaðarins en heildarfjöldi atvinnulausra í greininni sé nú tæplega 1.300 og hafi þeim fjölgað talsvert frá því fyrir ári. Kristján segir að fyrirsjáanlegt sé einnig að boðuð hækkun skatta muni draga verulega úr íbúðauppbyggingu umfram það sem nú þegar sé komið fram. Þessi samdráttur í byggingariðnaði snerti ekki eingöngu húsasmiði, rafvirkja og múrara heldur muni samfélagið allt finna fyrir áhrifum samdráttarins.

Hér er hægt að lesa grein Kristjáns í heild sinni.

Vísir, 9. júní 2026.