Fréttasafn



14. feb. 2018 Almennar fréttir Mannvirki

Uppselt á sýningarsvæði

Uppselt er á sýningarsvæði stórsýningarinnar Verk og vit sem verður haldin í fjórða sinn í Laugardalshöll 8.-11. mars næstkomandi en þar munu um 110 fyrirtæki og stofnanir kynna vörur sínar og þjónustu. Þar á meðal eru húsaframleiðendur, verkfræðistofur, menntastofnanir, innflytjendur, fjármálafyrirtæki, tækjaleigur, bílaumboð, steypustöðvar, hugbúnaðarfyrirtæki og starfsmannaleigur.

Sýningin er ætluð þeim sem koma að bygginga- og mannvirkjagerð á ýmsum stigum, s.s. sveitarfélögum, verktökum, iðnaðar- og þjónustufyrirtækjum, menntastofnunum, hönnuðum og ráðgjöfum. Fyrstu tvo dagana, 8. og 9. mars, verður sýningin opin fyrir fagaðila en helgina 10.-11. mars verður almenningur jafnframt boðinn velkominn. Um 23 þúsund gestir sóttu sýninguna Verk og vit þegar hún var haldin síðast árið 2016. 

Mikilvæg fagsýning

„Verk og vit er fyrst og fremst fagsýning. Hún felur í sér einstakt tækifæri fyrir fagaðila, innlenda jafnt sem erlenda til að kynna vörur sínar og þjónustu. Hún er kjörinn vettvangur fyrir sýnendur til að styrkja tengslanetið, efla samband við núverandi viðskiptavini og bæta nýjum í hópinn,“ segir Ingibjörg Gréta Gísladóttir, framkvæmdastjóri sýningarinnar. Hún segir jafnframt að fagsýning eins og Verk og vit sé mikilvæg fyrir iðnaðinn og menntastofnanir, því þar komi aðilar saman og kynna framsæknar nýjungar og þróun í skipulagsmálum, byggingariðnaði og mannvirkjagerð. „Það að uppselt sé á sýningarsvæðið mánuði fyrir sýningu staðfestir það.“

Framkvæmdaaðili sýningarinnar er AP almannatengsl en samstarfsaðilar eru atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins, BYKO og Landsbankinn.