Útboðsþing SI fer fram 30. janúar
Útboðsþing SI 2024 fer fram í Háteig á Grand Hótel Reykjavík þriðjudaginn 30. janúar kl. 13-16. Á Útboðsþingi SI sem er haldið í samstarfi við Félag vinnuvélaeigenda og Mannvirki - félag verktaka verða kynnt fyrirhuguð útboð ársins 2024 á verklegum framkvæmdum opinberra aðila.
Hér er hægt að skrá sig á þingið.
Fundarstjóri er Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI.
Dagskrá
- Ávarp - Árni Sigurjónsson, formaður SI
- Ávarp - Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
- Samantekt - Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Framkvæmdasýslan – Ríkiseignir - Óskar Jósefsson, forstjóri
- Vegagerðin - Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs
- Reykjavíkurborg - Einar Þorsteinsson, borgarstjóri
- Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu - Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri
- Landsvirkjun - Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmda
- Landsnet - Unnur Helga Kristjánsdóttir, forstöðumaður verkefnastjórnunar framkvæmda
- Rarik - Kristín Soffía Jónsdóttir, framkvæmdastjóri þróunar og framtíðar
- Veitur - Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra
- Nýr Landspítali - Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri
- Isavia - Páll Svavar Pálsson, forstöðumaður flugvallarþróunar og uppbyggingar