Vaxtahækkun þrengir enn frekar að og dýpkar samdráttinn
„Háir vextir hafa þegar haft sín áhrif á fólk og fyrirtæki og hægt á umsvifum. Aukinnar svartsýni gætir og vaxtahækkun myndi þrengja enn frekar að fyrirtækjum og dýpka samdráttinn. Auk þess kæmi hún á viðkvæmum tíma á vinnumarkaði,” segir Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI í frétt Morgunblaðsins í kjölfar tilkynningar um sterk rök fyrir óbreyttum stýrivöxtum Seðlabankans í næstu vaxtaákvörðun 19. ágúst. Þar á meðal segja samtökin hagkerfið kólna hratt og vara við því að frekari vaxtahækkun geti aukið á samdrátt, ekki síst í byggingariðnaði.
Sigurður segir jafnframt í frétt Morgunblaðsins að það geti sannarlega verið bjart yfir Íslandi ef horft sé til nokkurra ára. „En það gerist ekki nema gripið verði í taumana núna. Tvö meginverkefni stjórnvalda næstu misseri eru að ná tökum á efnahagsmálum og að auka samkeppnishæfni Íslands. Þetta þarf að gera með samstilltu átaki margra aðila um að finna samhljóminn til næstu ára og helst áratuga. Undanfarið hefur verið kallað eftir þjóðarsátt og nú þarf að leggja drög að henni. Lausnirnar eru til, það er okkar að koma vilja í verk.“
Morgunblaðið, 15. ágúst 2026.

