Vaxtarsproti ársins er 1939 Games með 260% vöxt milli ára og yfir milljarð í veltu
Sprotafyrirtækið 1939 Games hefur verið valið Vaxtarsproti ársins sem er viðurkenning fyrir öfluga uppbyggingu sprotafyrirtækis en velta fyrirtækisins meira en þrefaldaðist, veltan jókst um 260% milli ára, fór úr 466 milljónum króna í 1.675 milljónir króna. Fyrirtækið hlaut einnig viðurkenningu fyrir að hafa náð þeim árangri á síðasta ári að velta varð meira en einn milljarður króna. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Logi Einarsson, afhenti Vaxtarsprotann 2026 í Flórunni í Grasagarðinum í Laugardal fyrr í dag og var þetta í 20. sinn sem viðurkenningin er veitt.
1939 Games er íslenskt tölvuleikjafyrirtæki, stofnað árið 2015 af reynslumiklum frumkvöðlum úr íslenskum leikjaiðnaði. Fyrirtækið þróar og gefur út herkænskukortaleikinn KARDS, sem byggir á síðari heimsstyrjöldinni og hefur náð miklum árangri á alþjóðlegum markaði. Leikurinn hefur nú laðað að sér yfir fjórtán milljónir leikmanna um allan heim. Höfuðstöðvar 1939 Games eru í Reykjavík og fyrirtækið rekur jafnframt starfsstöð í Helsinki. Samhliða áframhaldandi vexti KARDS vinnur félagið að þróun nýrra tölvuleikja og frekari sókn á alþjóðamarkaði.
Ívar Kristjánsson, framkvæmdastjóri 1939 Games: „Þessi viðurkenning er okkur hjá 1939 Games mikill heiður og staðfesting á því frábæra starfi sem teymið okkar hefur unnið. Vöxturinn endurspeglar þann mikla árangur sem KARDS hefur náð á alþjóðlegum markaði og sýnir að íslensk hugverk og leikjagerð geta náð langt á heimsvísu. Við erum nú með yfir eina milljón spilara í hverjum mánuði og erum afar stolt af þessum árangri og full tilhlökkunar gagnvart þeim fjölmörgu tækifærum sem fram undan eru.“
Einnig var veitt viðurkenning fyrir góðan vöxt í flokki fyrirtækja með ársveltu á bilinu 10-100 milljónir króna og var það sprotafyrirtækið dala.care sem hlaut þá viðurkenningu. Sprotafyrirtækið dala.care er íslenskt fyrirtæki sem byggir lausnir fyrir heimaþjónustu. Kerfið heldur utan um daglegt starf umönnunaraðila, dagskrá og athafnir. Gögnin sem verða til um heilsufar og færni bæta þjónustuna og lengja þann tíma sem fólk getur búið sjálfstætt heima. Fyrirtækið þjónustar meirihluta félagslegrar heimaþjónustu hérlendis og er í vexti á Bandaríkjamarkaði.
Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins (SI), Háskólans í Reykjavík (HR) og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands (Rannís). Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.
Í dómnefnd voru Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir fyrir Háskólann í Reykjavík, Svandís Unnur Sigurðardóttir fyrir Rannís og Erla Tinna Stefánsdóttir fyrir Samtök iðnaðarins.
Verðlaunagripur Vaxtasprotans er íslensk hönnun og smíðaður hjá Héðni hf.
Eftirtalin fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann frá árinu 2007: 1939 Games (2026) Aldin Dynamics (2025), Abler (2024), Hopp (2023), Controlant (2022), 1939 Games (2021), Kerecis (2020), Carbon Recycling International (2019), Kaptio (2018), Kerecis (2017), Eimverk (2016), Kvikna (2015), DataMarket (2014), Meniga (2013), Valka (2012), Handpoint (2011), Nox Medical (2010), Mentor (2009), Mentor (2008) og Marorka (2007).
Mynd/BIG
Frá afhendingu Vaxtarsprotans í Grasagarðinum í Laugardal. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Ari Páll Albertsson, tæknistjóri 1939 Games, Hekla Arnardóttir, stjórnarformaður 1939 Games, Guðmundur Kristjánsson, meðstofnandi 1939 Games, Erla Tinna Stefánsdóttir hjá SI og í dómnefnd, Ívar Kristjánsson, stofnandi og framkvæmdastjóri 1939 Games, Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Ágúst Ingþórsson, forstöðumaður Rannís, Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík, Hanna Rut Sigurjónsdóttir, þjónustustjóri dala.care, Svandís Unnur Sigurðardóttir, hjá Rannís og í dómnefnd og Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, rekstrarstjóri dala.care.

