Fréttasafn



22. maí 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Vaxtarsprotinn afhentur í 13. skiptið á morgun

Vaxtarsprotinn verður afhentur á morgun fimmtudaginn 23. maí kl. 8.30 í Flórunni í Grasagarðinum í Laugardal. Þrjú fyrirtæki hafa verið valin af dómnefnd Vaxtarsprotans til að hljóta viðurkenningar fyrir vöxt í veltu á milli ára. Það fyrirtæki sem sýndi mestan hlutfallslegan vöxt milli áranna 2017 og 2018 auk þess að uppfylla önnur viðmið dómnefndar hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins. 

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Vaxtarsprotinn var fyrst afhentur 2007 og er þetta því í 13. skiptið sem viðurkenningarnar eru veittar en tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja.

Dómnefndina skipa Lýður Skúli Erlendsson fyrir Rannsóknarmiðstöð Íslands, Gísli Hjálmtýsson fyrir Háskólann í Reykjavík, Salóme Guðmundsdóttir fyrir Samtök sprotafyrirtækja og Sigríður Mogensen fyrir Samtök iðnaðarins. 

Hér er hægt að skrá sig á viðburðinn. 

Frá afhendingu Vaxtarsprotans á síðasta ári þegar Kaptio hlaut viðurkenninguna Vaxtarsproti ársins.