Fréttasafn



12. des. 2023 Almennar fréttir Félag blikksmiðjueigenda Mannvirki

Vel sóttur jólafundur Félags blikksmiðjueigenda

Jólafundur Félags blikksmiðjueigenda, FBE, var vel sóttur en fundurinn fór fram í Húsi atvinnulífsins fimmtudaginn 7. desember. Fundurinn hófst á fordrykk þar sem tekið var á móti gestum. Sævar Jónsson, formaður FBE, setti fundinn og bauð gesti velkomna. Elísa Arnarsdóttir, viðskiptastjóri á mannvirkjasviði SI, kynnti helstu verkefni og starfsemi FBE. Að kynningum loknum var boðið upp á veitingar frá Grillvagninum og uppistand frá Inga B. Róbertssyni. 

2_1702384432232

3_1702384453194

5_1702384474453

6_1702384494397