Vel sóttur viðburður um framtíð menntatækni í Grósku
Fjölbreytt flóra íslenskra menntatæknifyrirtækja kynnti nýjar lausnir og hugmyndir um framtíð náms og vinnumarkaðar á viðburðinum Future of Learning – EdTech Showcase, sem haldinn var í húsakynnum Íslandsstofu í Grósku í tengslum við nýsköpunarvikuna. Viðburðurinn sem Íslandsstofa og SI stóðu að var vel sóttur og skapaðist lífleg umræða um hvernig íslensk nýsköpun getur stutt við menntun, starfsþróun og aukna hæfni á vinnumarkaði. Í opnunarávarpi lagði Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri tækni- og hugverkaiðnaðar hjá SI, áherslu á mikilvægi nýsköpunar í menntun og mannauðsmálum fyrir samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs. Hún sagði Samtök iðnaðarins leggja áherslu á að áfram verði stutt við þróun hugvitsdrifinna fyrirtækja og samstarf atvinnulífs og menntakerfis verði aukið til að mæta breyttum kröfum framtíðarinnar. Að loknum kynningum gafst þátttakendum kostur á að ræða saman og mynda tengsl yfir veitingum, þar sem skýr áhugi kom fram á auknu samstarfi milli menntakerfis, atvinnulífs og tæknifyrirtækja.
Lausnir sem tengja saman nám og atvinnulíf
Á dagskránni voru bæði HRTech- og EdTech-fyrirtæki sem kynntu lausnir sínar og sýndu hvernig tæknin getur umbreytt ráðningum, starfsþjálfun, tungumálanámi og skólastarfi. Meðal fyrirtækja sem kynntu voru Atlas Primer, Opus Futura, Alda, Kara Connect, Alfreð, Meta Geta, Bara tala, Evolytes, Beanfee og Beedle. Kynningarnar sýndu meðal annars hvernig gervigreind er nýtt til að bæta ráðningarferli, efla samskiptahæfni, styðja við inngildingu á vinnustöðum og styrkja tengsl heimila og skóla.
Fyrirtækin lögðu áherslu á að lausnir þeirra væru þróaðar með þarfir notenda að leiðarljósi og gætu nýst bæði í íslensku samfélagi og á alþjóðlegum mörkuðum.
Íslensk hugvit á vaxandi markaði
Viðburðurinn undirstrikaði þann kraft sem býr í íslenskum menntatæknifyrirtækjum og mikilvægi þess að skapa umhverfi þar sem nýsköpun getur vaxið og þróast. Menntatækni er ört vaxandi geiri á heimsvísu og íslensk fyrirtæki hafa þar tækifæri til að byggja upp verðmæti, skapa störf og styrkja stöðu Íslands sem þekkingarsamfélags.
Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri tækni- og hugverkaiðnaðar hjá SI.


